07:03
Morgunvaktin
Ítölsk stjórnmál, náttúruminjasafn á hrakhólum og Háskólinn á Bifröst

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Stjórnmál á Ítalíu voru umfjöllunarefni Heimsgluggans. Þar hafa þau undur orðið að ríkisstjórnin sem mynduð var fyrir fjórum árum undir forsæti Giorgiu Meloni starfar enn. Það er merkilegt því líftími ítalskra ríkisstjórna hefur síðustu áratugi verið skammur. Bogi Ágústsson og Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður á Gímaldinu ræddu þessi mál. Aðalheiður býr á Ítalínu en er stödd á Íslandi.

Við fjölluðum líka um Náttúruminjasafn Íslands. Það er eitt höfuðsafna landsins og ber ábyrgð og skyldur sem slíkt en sýningahald hefur verið af skornum skammti vegna húsnæðisleysis. Safnið á sér hollvini og einn þeirra, Áki Jarl Láruson, kom til okkar.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst, var svo síðasti gestur þáttarins. Hún tók við starfi rektors til bráðabirgða í febrúar en hefur nú verið ráðin til frambúðar. Við spjölluðum um háskólann á Bifröst og háskólamál vítt og breitt.

Tónlist:

KK. - Vegbúinn.

Hilmar Jensson, Magnús Trygvason Eliassen, Sölvi Kolbeinsson - Spring rolls.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
    ,