
Á tónsviðinu
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Margir kannast við Agöthu Christie, einn frægasta höfund sakamálasagna sem uppi hefur verið. Hitt er kannski ekki á allra vitorði að hún var mikill óperuunnandi og á æskuárunum langaði hana til að verða óperusöngkona. Rithöfundarferill Agötnu Christie stóð frá árinu 1920 til 1973 og óperuáhuginn hafði nokkur áhrif á sögur hennar því í mörgum þeirra má finna tilvísanir í óperur. Í þættinum verða lesin nokkur slík sögubrot og flutt þau óperuatriði sem tengjast þeim. Þar má nefna sögurnar „The Murder of Roger Ackroyd“, þar sem minnst er á óperuna „Pelléas og Mélisande“" eftir Debussy, „The Call of Wings“ þar sem óperan „Rienzi“ eftir Wagner kemur við sögu, og „Cat Among the Pigeons“ þar sem getið er um óperuna „Faust“ eftir Gounod. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Halla Harðardóttir.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.