12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 19. nóvember

Útvarpsfréttir.

Ríkisútgjöld verða skorin niður milli umræðna um fjárlagafrumvarpið í þinginu, til að fjárlög verið hallalaus, segir fjármálaráðherra.

Afrakstur fundar forseta Bandaríkjanna, Rússlands og Kína er yfirlýsing um frekari viðræður til að draga úr hættu af kjarnorku og koma í veg fyrir útbreiðslu kjarnorkuvopna.

Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur komist að þeirri niðurstöðu að Mjanmar hafi framið þjóðarmorð á Róhingjum. Þetta er í fyrsta sinn sem dómstóllinn sakfellir ríki fyrir þjóðarmorð.

Útgáfa nýjasta GTA tölvuleiksins í nótt, er einn stærsti viðburður í afþreyingarbransanum fyrr og síðar að mati tölvuleikjafræðings. Við ræðum við tölvuleikjanjörð sem er að spila leikinn í beinni.

Ákall til Akureyringa um að spara heitavatnið í frostinu, skilaði góðum árangri. Birgðastaða hefur batnað og tekist að gera við bilanir í kerfinu.

Vegfarendur á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi gætu lent í vanda vegna hálku í dag.

Rauðir krabbar á Jólaeyju eru lagðir af stað í árlega göngu sína úr skóginum og niður að sjó.

Íslenska karlalandsliðið í áhaldafimleikum varð Norður-Evrópumeistari um síðustu helgi. Það er besti árangur sögunnar að mati sérfræðings.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 22 mín.
    ,