18:00
Kvöldfréttir útvarps
Hagaskóli, uppsagnir hjá ríkislögreglustjóra, leiðtogafundur og verkfalli aflýst

Fréttir.

Foreldrar barna í Hagaskóla segja börn sín hafa fengið tilmæli um að tala ekki um atvik þar sem tveir kennarar áttu í ástaratlotum á skólatíma.

Staða samskiptastjóra hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra var lögð niður í dag. Alls var fimm sagt upp hjá embættinu.

Það eina sem var sögulegt við þríhliða fund leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína var að þeir komu saman á einum stað segir prófessor í sagnfræði. Fundurinn virtist fyrst og fremst tilefni til að láta mynda sig saman.

Icelandair hefur samþykkt ákvörðun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) um að fresta verkfalli sem átti að á miðnætti um þrjár vikur. Það hefst að miðnætti 10. desember ef samningar nást ekki.

Hæstiréttur sneri við dómi Landsréttar í deilu tveggja fyrirtækja sem framleiða plastpoka.

Forstjóri Q-air á Íslandi segir samfélagslegan ávinning þurfa að vega þyngra en rask á náttúrunni við orkuframkvæmdir. Fimmtíu og ein umsögn barst um fyrirhugað vindorkuver við Hnotastein.

Umsjón: Hugrún Hannesdóttir Diego

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
    ,