09:03
Kjarkur, von og söngur
Kjarkur, von og söngur

Suður-afríska söngkonan Miriam Makeba hélt tónleika á Listahátíð í Reykjavík árið 2006. Ævi hennar hefur var viðburðarík og tengd baráttunni gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku. Rúm 30 ár ævi sinnar var hún í útlegð frá heimalandi sínu en óþreytandi við að benda umheiminum á misréttið sem þar viðgekkst.

Sigríður Stephensen gerði þriggja þátta röð um þessa merku listakonu árið 2006.

Árin í Bandaríkjunum. Samstarf við Harry Belafonte, ræður á þingi Sameinuðu þjóðanna um kynþáttaaðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku. Pata pata.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 51 mín.
e
Endurflutt.
,