08:05
Á tónsviðinu
Söngvar og tónverk um júní

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þættinum verður leikin tónlist sem tengist júnímánuði. Tvö 19. aldar tónskáld, Fanny Mendelssohn-Hensel og Pjotr Tsjaíkovskí, sömdu röð stuttra píanóverka þar sem hvert verk táknaði einn mánuð. Fanny samdi verk sitt 1841 og gaf júníkaflanum undirtitilinn „Mansöngur". Hjá Tsjaíkovskí heitir júníkaflinn „Bátssöngur", en hans verk er frá árinu 1875. Þessi tvö smáverk verða flutt í þættinum og einnig allmargir söngvar um júnímánuð, svo sem „Júnímorgunn" eftir Jórunni Viðar, „June" eftir Roger Quilter og „June is bustin´ out all over" úr söngleiknum „Carousel" eftir Rodgers og Hammerstein. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jóhannes Ólafsson.

Er aðgengilegt til 12. september 2026.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,