Listahátíð í Reykjavík 2026

Samhljómur kynslóða: Hildur Guðnadóttir og Jón Nordal

Hljóðritun frá tónleikum Kórs Hallgrímskirkju sem fram fóru á Listahátíð í Reykjavík, 7. júní í Hallgrímskirkju.

Tónleikarnir báru yfirskriftina Samhljómur kynslóða: Hildur Guðnadóttir og Jón Nordal. Þar mættust tvær kynslóðir íslenskrar tónsköpunar í áhrifamikilli dagskrá sem sameinaði verk eftir Jón Nordal (1926–2024) og Hildi Guðnadóttur (f. 1982).

Árið 2026 markar hundrað ár frá fæðingu Jóns Nordals, eins merkasta tónskálds Íslands á síðustu öld. Á tónleikunum var meðal annars flutt hið stórbrotna verk hans Óttusöngvar á vori, ásamt Toccötu fyrir orgel.

Hátíðarlistamaður Listahátíðar í Reykjavík 2026 er Hildur Guðnadóttir, sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir tónsmíðar sínar fyrir kvikmyndir, sjónvarp og tónleikaverk. Á tónleikunum voru flutt þrjú verk eftir hana: What is the Matter, Vichnaya Pamyat og Fólk fær andlit.

Ásamt Kór Hallgrímskirkju koma fram söngkonurnar Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir messósópran, Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Frank Aarnink slagverksleikari.

Stjórnandi: Steinar Logi Helgason.

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Birt

14. júní 2026

Aðgengilegt til

14. júní 2027

Listahátíð í Reykjavík 2026

Þættir

,