10:15
Baunin
2. þáttur

Við erum stödd í plássi fyrir vestan í kringum aldamótin, Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan, þar er líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni, þau eru spennt hvort fyrir öðru en fyrr en varir breytist allt og þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir....

Handrit: Friðgeir Einarsson, Kári Viðarsson og María Reyndal

Leikstjórn: María Reyndal

Aðstoð við handrit: Hrafnhildur Orradóttir

Tónlist: Úlfur Eldjárn

Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson

Baunin er að hluta til byggð á leikritinu Prinsinn eftir Kára Viðarsson og Maríu Reyndal sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu árið 2022.

Það kemur í ljós að nóttin eftir sjómannadagsballið mun draga dilk á eftir sér. Bergur og Birta þurfa nú að horfast í augu við afleiðingar hennar.

Persónur og leikendur:

Bergur – Mikael Emil Kaaber

Birta – Birta Sólveig Söring Þórisdóttir

Bíógestur – Katla Njálsdóttir

Fanney – Ásthildur Úa Sigurðardóttir

Gubba – Hrafnhildur Orradóttir

Hemmi – Ingi Þór Þórhallsson

Kynnir – Gunnar Hanson

Mamma Bergs – Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Pabbi Bergs – Kári Viðarsson

Röggi – Friðgeir Einarsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
,