Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Við héldum áfram að fjalla um samfélagið og líðan fólks. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá Landlæknisembættinu og doktor í lýðheilsu, ræddi um félagsleg tengsl og einmanaleika, en skortur á félagslegum tengslum er stór áhættuþáttur bæði í andlegri og líka líkamlegri heilsu. Hún sagði okkur líka frá nýjum lýðheilsuvísum, þar sem fram kemur að 15 prósent barna í 8.-10. bekk upplifa sig utangarðs í skóla.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri í Múlaþingi kom líka til okkar. Við töluðum við hann um samgöngur, uppbyggingu og fleira. Hann hefur ákveðið að láta af störfum um áramótin, og ræddi þá ákvörðun líka.
Magnús Lyngdal var með okkur og hélt áfram að fræða okkur um sígilda tónlist og leyndardóma hennar. Í dag fjallaði hann um takt og leyfði okkur að heyra brot úr nokkrum tónverkum, leikin bæði hægt og hratt.
Í upphafi þáttar hringdum við í Reykholt og spjölluðum svolítið um sjálfan Snorra Sturluson við Berg Þorgeirsson, forstöðumann Snorrastofu.
Tónlist:
Conjunto Cachicadan - Mi china Lola.
Jorge Barssy Y Su Conjunto - El Panado.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um soldánsveldið Brúnei í Suðaustur-Asíu og sér í lagi núverandi soldán þess og bróður hans, en báðir eru þekktir fyrir eyðslusemi og gjálífi.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, leik- og tónlistarkonurnar Elín Hall og Katla Njáls. Þær leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Ljósbrot sem hefur fengið frábærar viðtökur, var frumsýnd á Cannes, hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða og er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þær hafa báðar leikið talsvert, bæði á sviði og fyrir framan myndavélarnar, og svo eru þær líka báðar tónlistarkonur og hafa stofnað dúettinn Mammaðín. Við spjölluðum við þær um lífið og tilveruna, leiklistina og tónlistina og reynsluna af því að leika saman í kvikmyndinni Ljósbrot og lífsreynsluna af því að vera á rauða dreglinum og frumsýna hana í Cannes.
Í matarspjalli dagsins var Sigurlaug Margrét með áhugaverða matreiðslubók í farteskinu. Það er ekki hægt að segja að hollustan sé í fyrirrúmi í téðri bók, þar sem uppskriftir af uppáhaldsmat eins frægasta tónlistarmanns sögunnar, Elvis Presley, er safnað saman.
Tónlist í þættinum:
Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
California Dreamin / The Mamas & The Papas (John Phillips & Michelle Phillips)
Mammaðín / Frekjukast (Dagný Kristjánsdóttir, Elín Sif Halldórsdóttir, Jóhannes Damian Patreksson, Katla Njálsdóttir og Kristján Jóhann Jónsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Maður sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni á sunnudag er sakhæfur samkvæmt bráðabirgðageðmati.
Hezbollah samtökin skutu tugum eldfauga til Ísraels í dag. Ísraelsher hefur haldið árfam árásum á Líbanon. Svo virðist sem meginþungi stríðsins sé að færast frá Gaza til Líbanons.
Á fjórða tug fatlaðs fólks í Reykjavík bíður eftir NPA þjónustu, þrátt fyrir að hafa fengið umsóknir fyrir þjónustunni samþykktar. Óvíst er hvernig þjónustunni verður háttað eftir að ríkið hættir að taka þátt í kostnaði um áramót.
Fyrrverandi skrifstofustjóri sparisjóðs og fyrrum forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð var dæmdur fyrir fjárdrátt fyrir fjórum árum. Ekki hefur verið áður fjallað um dóminn, þar sem hann var ekki birtur opinberlega.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir glapræði að halda ekki uppi góðu eftirliti á landamærunum og halda óþjóðalýð frá landinu. Hann segir að eftirtektarverður árangur hafi náðist í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli.
Fleiri konur hafa stigið fram og sakað Mohamed Al-Fayed fyrrum eiganda Harrods um kynferðisofbeldi. Sú yngsta var 16 ára þegar meint brot var framið.
Matvælastofnun tekur í dag sýni úr hvítabirninum sem var skotinn í Jökulfjörðum. Ekki hefur verið ákveðið hvort leitað verður að fleiri dýrum.
Víkingur spilar heimaleiki sína í Sambandsdeildinni í fótbolta á Kópavogsvelli. Leiktímanum var flýtt til þess að mæta kröfum UEFA - og verða leikirnir verða um miðjan dag.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Í vikunni var héraðslæknir í litlu byggðinni Frosta, norður af Þrándheimi í Noregi, ákærður fyrir nauðganir gegn 88 konum. Konurnar voru sjúklingar mannsins og við þær aðstæður tók hann yfir sex þúsund klukkustundir af myndefni af konunum. Við ræðum málið við Henning Levold fréttamann NRK og heyrum lýsingar af samfélaginu frá Rósbjörgu Rósenberg sem bjó í Frosta fyrir skömmu.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: samfelagid@ruv.is
Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands Íslenskra Stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands Íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar.
Í dag ætlum við að fjalla um stúdentahreyfingar; íslenskar, útlenskar, alþjóðlegar. Þessa dagana dvelja fulltrúar Landsambands íslenskra stúdenta í Póllandi og taka þátt í þingi fyrir evrópskar stúdentahreyfingar. Við fáum til okkar Lísu Margréti Gunnarsdóttur, forseta Landssambands íslenskra Stúdenta, fræðumst um hvað á sér stað á þessu þingi, og hvað ber hæst í hagsmunabaráttu stúdenta, hér á Íslandi og annars staðar.
Síðan bregðum við okkur til Húsavíkur. Samfélagið er nýkomið úr ferðalagi um Norðurland, og í dag flytjum við viðtöl sem tekin voru þegar við heimsóttum glerskála við Húsavíkurhöfn, þar sem Huld Hafliðadóttir og Bridget Burger starfrækja STEM Húsavík, verkefni sem hefur það að markmiði að auka færni Húsvíkinga í hinum svokölluðu STEM-greinum.
Í gær fór starfamessa Austurlands fram á Egilsstöðum, og það hljóp á snærið hjá Samfélaginu, sem var alls ekkert á Austurlandi því Jón Knútur Ásmundsson, verkefnastjóri Austurbrúar var á svæðinu og tók viðtöl við gesti og gangandi fyrir hlaðvarpsrás Austurbúar og gaf okkur leyfi til að nota það. Austurbrú eru hagsmunasamtök sem vinna að því að Austurland verði staður fólks, fyrirtækja og fjárfesta sem vilja byggja upp sjálfbært samfélag og starfamessan er hugsuð til að kynna þau störf sem unnin eru á Austurlandi fyrir ungu fólki. Meira um það á eftir.
Útvarpsfréttir.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Lagalisti:
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-03-01
Olamide, Asake - New Religion (Lyrics!) (bonus track wav).
Super Mama Djombo - Baliera.
Araba, J.O., Araba, J.O. and his Rhythm blues - Iyawo ma pa mi.
Nedelchev, Stoyan, Trifonov, Trifon, Grigorov, Stoyan, Krastev, Iliya, Trifonov, Trifon and Stanimaka, Trendafilova-Gioreva, Velichka, Dimitrov, Dimitar - Indje Voivóda.
Svigals, Alicia - Dem trisker tebns khosid.
Fanfara Tirana - Kaprollja = The fawn.
Free at Last - Cry the beloved country.
Chiweshe, Stella - Kachembere.
Chiweshe, Stella - Chapfudzapasi.
Women of Mambazo - Vimba.
Lindsay, Arto - Grain by Grain.
Lindsay, Arto - Pele De Perto.
Wisnik, José Miguel - Madre Deus.
Milito, Helcio, Gilberto, João, Gilberto, Joao Trio, Betts, Keeter - Bim bom.
Útvarpsfréttir.
Fjallað um drauma í tíma og rúmi, sögu og menningu, bókmenntum, sálarfræði, þjóðtrú og fleira.
Umsjón: Þorleifur Friðriksson. (Áður á dagskrá 2005)
Flytjendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, leikkona, Arnar Jónsson, leikar og Þorleifur Hauksson, íslenskufræðingur.
Rætt er við Sigurjón Björnsson, sálfræðing.
Aðrir þátttakendur: Bíbí Ólafsdóttir, spákona og Hermundur Rósinkrans Sigurðsson, talnameistari.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Plata þessarar viku er She's So Unusual, fyrsta sólóplata söngkonunnar og lagasmiðsins Cyndi Lauper sem gefin var út árið 1983. Með þessari plötu öðlaðist hún heimsfrægð.
Fjögur lög breiðskífunnar sem gefin voru út á smáskífum komust inn á topp 5 listann í Bandaríkjunum. Var það í fyrsta sinn sem bandarísk tónlistarkona náði slíkum árangri í heimalandinu.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Hlið 1
1. Money Changes Everything.
2. Girls Just Want to Have Fun.
3. When You Were Mine.
4. Time After Time.
Hlið 2
1. She Bop.
2. All Trough the Night.
3. Witness.
4. I'll Kiss You.
5. He's So Unusual.
6. Yeah Yeah.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir þáttarins eru Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri, Magnús Jochum Pálsson fréttamaður og skáld og Áslaug Torfadóttir þýðandi og handritshöfundur. Í þættinum er rætt um Emmy-verðlaunin og sjónvarpsþætti sem þar vöktu athygli. Einnig var rætt um gullöld sjónvarpsins, gervigreind, nostalgíu og bíó.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Kvöldfréttir útvarps
Lögmaður Yazans Tamimi ætlar að óska eftir við kærunefnd útlendingamála að umsókn Yazans Tamimi og fjölskyldu hans um alþjóðlega vernd verði send aftur til Útlendingastofnunar . Hann setur stórt spurningarmerki við vottorðið sem ríkislögreglustjóri útvegaði.
Erlendir brotamenn sem fá dóma hér á landi gætu verið látnir afplána utan landsteina, mögulega í Kósóvó. Þetta segir dómsmálaráðherra eftir fund með norrænum kollegum.
Einn af helstu forystumönnum Hezbollah er sagður hafa fallið í árásum Ísraels á skotmörk í suðurhluta Líbanons í dag. tólf voru drepin og tugir særðust.
Bæjarstjórinn í Kópavogi segir alrangt hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að einungis 59 íbúðir séu í byggingu í bænum. Bæta megi við einu núlli.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um ofbeldi í samfélaginu í ljósi voðaverka sem framin hafa verið í ár. Ekki síst er mikið rætt um ofbeldi meðal ungs fólks. Rannveig Þórisdóttir félagsfræðingur og samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra segir það skiljanlegt en að þótt skráðum ofbeldisbrotum hafi fjölgað sýni þolendakannir ekki að fleiri verði fyrir brotum.
Tuttugu og sex nýjir framkvæmdastjórar Evrópusambandsins voru kynntir á þriðjudaginn, eftir talsverðar sviptingar í tengslum við tilnefningar þeirra. Með valinu - og verkaskiptingu þessara embætta, er Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar almennt talin hafa tryggt - og jafnvel aukið - völd sín og áhrif í Brussel.
Lokaskákin í valdataflinu um eitt áhrifamesta fjölmiðlaveldi heims er nú tefld fyrir luktum dyrum í dómsal í Reno, Nevada-ríki. Rupert Murdoch og elsti sonurinn, Lachlan, sitja hlið við hlið andspænis órólegu deildinni sem fjölskyldfaðirinn vill að verði svipt völdum sínum, það sé þeim sjálfum fyrir bestu.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Lögin í þættinum eru annarsvegar með frönsku hljómsveitinni Paris Combo og hinsvegar með tónlistarmanninum Pino Daniele sem var frá Napolí. Lögin með Paris Combo heita: Valse d'Amour, Living Room, Fibre de verre, Discordance og Goodbye Pinnochio. Lögin með Pino Daniele heita: Natazzulla e' café, Je so' pazzo, Quanno Chiove, Dubbi non ho og O cammello Nnammurato.
Fjallað um drauma í tíma og rúmi, sögu og menningu, bókmenntum, sálarfræði, þjóðtrú og fleira.
Umsjón: Þorleifur Friðriksson. (Áður á dagskrá 2005)
Flytjendur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, leikkona, Arnar Jónsson, leikar og Þorleifur Hauksson, íslenskufræðingur.
Rætt er við Sigurjón Björnsson, sálfræðing.
Aðrir þátttakendur: Bíbí Ólafsdóttir, spákona og Hermundur Rósinkrans Sigurðsson, talnameistari.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.
Netfang: samfelagid@ruv.is
Í dag fjöllum við um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Oft er talað um glerþakið þegar rætt er um hindranir sem konur mæta á vinnumarkaði; þá sérstaklega hvað varðar kjör og stöðuhækkanir. Hindrar glerþakið líka uppgang hinsegin fólks á atvinnumarkaði? Við ræðum þetta og fleira við Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá stéttarfélaginu Visku.
Árum saman hafa dýrahræ verið urðuð hér á landi, þvert á lög og reglur. Nú - eða í það minnsta á næstu árum stendur til bóta. Við ætlum að ræða áform um líforkuver á Dysnesi við Eyjafjörð. Kristín Helga Schiöth, framkvæmdastjóri Líforkuvers ehf. kemur til okkar og segir okkur frá stöðunni og því hvað þarf að gerast í náinni framtíð - og það er mikið í húfi - því verði ekki breytingar gætu íslensk matvæli verið stimpluð óörugg á meginlandi Evrópu.
Er hið opinbera of duglegt að styrkja verkefni sem eru skaðleg fyrir umhverfið? Erum við að fjármagna okkar eigin útrýmingu? Þetta er á meðal þess sem Stefán Gíslason, umhverfisstjórnarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fjallar um í pistli dagsins.
Edda Olgudóttir, kemur svo til okkar í vísindaspjall og ræðir nýjar rannsóknir sem benda til þess að neysla á rauðu kjöti auki líkurnar á því að fólk fái sykursýki af gerð tvö.
Tónlist:
Otis Redding - Wonderful World.
GDRN - 10 dropar (Upptaka úr Tónatal).
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Þórhallur Sigurðsson les. Sagan fjallar um Íslending sem hvarf að heiman um dimma nótt frá fjölskyldu sinni og vinum og endaði sem einkaþjónn hjá bandaríska auðkýfingnum William Randolph Hearst eftir fyrri heimsstyrjöld. Hvers vegna yfirgaf hann konu sína og börn, blómlegt fyrirtæki og trausta stöðu í Reykjavík? Hvernig lenti hann í höll Hearsts blaðakóngs í Kaliforníu? (Áður á dagskrá 2010)
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Föstudagsgestir Mannlega þáttarins í þetta sinn voru tveir, leik- og tónlistarkonurnar Elín Hall og Katla Njáls. Þær leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Ljósbrot sem hefur fengið frábærar viðtökur, var frumsýnd á Cannes, hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða og er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna. Þær hafa báðar leikið talsvert, bæði á sviði og fyrir framan myndavélarnar, og svo eru þær líka báðar tónlistarkonur og hafa stofnað dúettinn Mammaðín. Við spjölluðum við þær um lífið og tilveruna, leiklistina og tónlistina og reynsluna af því að leika saman í kvikmyndinni Ljósbrot og lífsreynsluna af því að vera á rauða dreglinum og frumsýna hana í Cannes.
Í matarspjalli dagsins var Sigurlaug Margrét með áhugaverða matreiðslubók í farteskinu. Það er ekki hægt að segja að hollustan sé í fyrirrúmi í téðri bók, þar sem uppskriftir af uppáhaldsmat eins frægasta tónlistarmanns sögunnar, Elvis Presley, er safnað saman.
Tónlist í þættinum:
Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
California Dreamin / The Mamas & The Papas (John Phillips & Michelle Phillips)
Mammaðín / Frekjukast (Dagný Kristjánsdóttir, Elín Sif Halldórsdóttir, Jóhannes Damian Patreksson, Katla Njálsdóttir og Kristján Jóhann Jónsson)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir þáttarins eru Gaukur Úlfarsson kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri, Magnús Jochum Pálsson fréttamaður og skáld og Áslaug Torfadóttir þýðandi og handritshöfundur. Í þættinum er rætt um Emmy-verðlaunin og sjónvarpsþætti sem þar vöktu athygli. Einnig var rætt um gullöld sjónvarpsins, gervigreind, nostalgíu og bíó.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Ísbjarnarhúnn var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum um fjögurleitið í gær. Hræ húnsins var flutt til Reykjavíkur í gærkvöldi og til stendur að rannsaka dýrið frekar. Iðlulega þegar ísbirnir rata á Íslandsstrendur vakna spurningar um það hvort virkilega sé nauðsynlegt að aflífa dýrin. Við hefjum þáttinn á smá ísbjarnaspjalli við Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar.
Mikil umræða hefur verið undanfarna daga um að íslenskt samfélag þurfi á einhvers konar naflaskoðun að halda, að við höfum jafnvel farið út af sporinu. Samtímis og við ræðum nauðsyn þess að halda þéttar utan um börn var barist fyrir því að langveikt barn fengi að dvelja hér. Er til eitthvað sem heitir siðferðiskennd þjóðar? Við ræðum við siðfræðinginn Henrý Alexander Henrýsson.
Morgunblaðið greindi frá því í gær að dómsmálaráðherra segi sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt. Yfirfull fangelsi hafa leitt til þess að önnur ríki hafa skoðað að fara þessa leið, sem við ætlum að ræða við Margréti Valdimarsdóttur, dósent í afbrotafræði við Háskóla Íslands.
Spænski miðjumaðurinn Rodri, leikmaður Manchester City, hefur greint frá því að leikmenn í bestu deildum heims íhugi nú verkfallsaðgerðir vegna fjölgunar leikja og aukins álags. Við ræðum mögulegt verkfall knattspyrnumanna við Jóhann Má Helgason, sérfræðing í fjármálum knattspyrnufélaga.
Venju samkvæmt förum við síðan yfir fréttir vikunnar, í þetta skiptið með fjölmiðlafólkinu Sindra Sindrasyni og Kristínu Ólafsdóttur.
Tónlist:
Bubbi Morthens - Ísbjarnarblús.
INSPECTOR SPACETIME & UNNSTEINN - Kysstu mig (feat. Unnsteinn).
Una Torfadóttir - Fyrrverandi.
BJÖRG PÉ - Timabært.
Birnir - Spurningar (ft. Páll Óskar).
Carpenter, Sabrina - Please Please Please.
OASIS - Don't Look Back In Anger.
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Það er farið að kólna örlítið út en það er funheitt hjá okkur á þessum föstudegi þar sem við gerum okkur tilbúin fyrir helgarfrí og reynum að muna hvað það getur verið gott að vera til. Lagalisti fólksins tekur yfir stóran hlut þáttarins með fullt af lögum frá fólki sem þau segja að geri þau alltaf glöð og þau geti hlustað á hvenær sem er.
Lagalisti:
Herra Hnetusmjör - Ómótstæðileg.
PRINCE - The Most Beautiful Girl in the World.
Blondie - Call Me (Theme From American Gigolo) (80).
GDRN - Þú sagðir.
WALK THE MOON - Shut Up And Dance.
The Ting Tings - Shut Up And Let Me Go.
ARCTIC MONKEYS - I Bet You Look Good On The Dancefloor.
CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL - Down On The Corner.
Eagles - Take it easy.
PHOENIX - 1901.
Lumineers, The, Kahan, Noah, Bay, James - Up All Night.
Þorsteinn Einarsson, Steinunn Jónsdóttir - Á köldum kvöldum.
RAVEN & RÚN - Handan við hafið.
Turner, Tina - Proud Mary.
STEVIE WONDER - He's Misstra Know-It-All.
Supersport! - Gráta smá.
Ragnhildur Gísladóttir - Draumaprinsinn.
KRISTÍN SESSELJA - I'm still me.
NO DOUBT - It?s My Life.
Rogers, Maggie - Don't Forget Me.
CHIC - Le Freak.
DE LA SOUL - A Rollerskating Jam Named Saturdays (80).
DEEE-LITE - Groove is in the heart.
Systur, Sísý Ey Hljómsveit, Bjørke, Kasper - Conversations.
Sycamore tree - Scream Louder.
Flott - Með þér líður mér vel.
LIQUIDO - Narcotic.
KATRINA AND THE WAVES - Walking On Sunshine.
THE SUPERMEN LOVERS - Starlight [Radio edit] (mp3).
SCISSOR SISTERS - I Don't Feel Like Dancin'.
RÚNAR JÚLÍUSSON - Það Þarf Fólk Eins Og Þig.
FLEETWOOD MAC - Albatross.
Bee Gees - Too Much Heaven.
ROLLING STONES - Angie.
TOKENS - The Lion Sleeps Tonight (Wimoweh).
BOBBY MCFERRIN - Don't Worry, Be Happy.
THE BEATLES - Let It Be.
THE BAND - The Weight.
Emilíana Torrini - Let?s keep dancing.
ÓLAFUR ÞÓRARINSSON - Undir Bláhimni.
MUNGO JERRY - In the summertime.
Herra Hnetusmjör - Upp til hópa.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Maður sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni á sunnudag er sakhæfur samkvæmt bráðabirgðageðmati.
Hezbollah samtökin skutu tugum eldfauga til Ísraels í dag. Ísraelsher hefur haldið árfam árásum á Líbanon. Svo virðist sem meginþungi stríðsins sé að færast frá Gaza til Líbanons.
Á fjórða tug fatlaðs fólks í Reykjavík bíður eftir NPA þjónustu, þrátt fyrir að hafa fengið umsóknir fyrir þjónustunni samþykktar. Óvíst er hvernig þjónustunni verður háttað eftir að ríkið hættir að taka þátt í kostnaði um áramót.
Fyrrverandi skrifstofustjóri sparisjóðs og fyrrum forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð var dæmdur fyrir fjárdrátt fyrir fjórum árum. Ekki hefur verið áður fjallað um dóminn, þar sem hann var ekki birtur opinberlega.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir glapræði að halda ekki uppi góðu eftirliti á landamærunum og halda óþjóðalýð frá landinu. Hann segir að eftirtektarverður árangur hafi náðist í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli.
Fleiri konur hafa stigið fram og sakað Mohamed Al-Fayed fyrrum eiganda Harrods um kynferðisofbeldi. Sú yngsta var 16 ára þegar meint brot var framið.
Matvælastofnun tekur í dag sýni úr hvítabirninum sem var skotinn í Jökulfjörðum. Ekki hefur verið ákveðið hvort leitað verður að fleiri dýrum.
Víkingur spilar heimaleiki sína í Sambandsdeildinni í fótbolta á Kópavogsvelli. Leiktímanum var flýtt til þess að mæta kröfum UEFA - og verða leikirnir verða um miðjan dag.
Matthías Már og Ólafur Páll spila alla helstu smeillina og öll hin lögin líka
Hárrétt blanda til að koma hlustendum inn í helgina.
Óli P. spilar lögin við vinnuna á föstudegi - Hitt & Þetta -
Það heyrast brot úr Rokklandi með Jakobi Smára Magnússyni og Emiliönu Torrini. Brot úr Árið ef 2015 (Úlfur Úlfur) og tóinleikaupptökur með Gildrunni (Bræðslan) og Magnúsi og Jóhanni (Ljósanótt). Bragi Valdimar Skúlason sagði líka frá laginu Hjuts ess bannsi sem Baggalútur var að senda frá sér ásamt GDRN.
Grafík - Tangó
Elvis - Burning love
Langi Seli og Skuggarnir - OK
Richard Hawley - Coles corner
Burt Bacharach & Elvis Costello - I´ll never fall in love again
Bogomil Font - Skítaveður
David Bowie - Surwive
Queen - The night comes down
Manic Street Preachers - Decline & fall
Oasis - Rockin´ chair
Slade - My oh my
ÁRIÐ ER 2015 - ÚLFUR ÚLFUR
Adele - When we were young
Björk - Stonemilker
Una Torfa - Dropi í hafi
Elín Hall - Hafið er svart
Bubbi - Sá sem gaf þér ljósið
Magnús og Jóhann & Hjálmar - Ást (læv á Ljósanótt 2024)
George Harrison - Give me love - give me peace on earth
Svavar Knútur - Draumalandið
Spacestation - Í draumalandinu
The Cure - Boys don´t cry
Das Kapital - Blindsker
JAKOB SMÁRI - BROT ÚR ROKKLANDI
The Stranglers - (Get a) Grip on yourself
The war on Drugs - Pain (live)
Ray Lamontagne - Step into you power
Gildran - Mærin (læv á Bræðslunni)
Mugison - Kletturinn
Bob Dylan - She belongs to me (Live 1974)
Snorri Helgason - Aron
Jónfrí - Skipaskagi
KD Lang - After the goldrush
Roy Orbison - She´s a mystery to me
Sváfnir Sigurðarson - Fer sem fer
BRAGI VALDIMAR UM HJUTS ESS BANNSI
Baggalútur og GDRN - Hjuts ess bannsi
Emiliana Torrini - Blame it on the sun
EMILIANA UM MIS FLOWER
Emiliana Torrini - Miss Flower
Elvis Costello - What´s so funny about peace love and understanding
Bruce Springsteen - See you in my dreams
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Í dag voru lýðheilsuvísar 2024 kynntir en lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Dóra Guðrún Guðmundsdóttirsviðsstjóri lýðheilsusviðs, embætti landlæknis kom til okkar og við spurðum hana út í þessa þætti.
Og til að koma okkur í góðan helgargír fengum við til okkur hana Unu Torfa sem var að senda frá sér nýtt lag í dag, lagið Dropi í hafi. Lagið er glænýtt en framundan hjá henni eru útgáfutónleikar á plötu hennar Sundurlaus samtöl sem kom út í apríl.
Bikarúrslit karla í fótbolta eru á morgun og þar mætast Víkingur og KA. Það má reikna með hörku rimmu í Laugardalnum en Víkingar unnu KA í úrslitaleiknum fyrir ári síðan. Og hituðum upp fyrir leikinn með tveimur eðal mönnum. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA mætti hingað ásamt Sverri Geirdal varaformanni knattspyrnudeildar Víkings.
Kvikmyndin Ljósvíkingar hefur heldur betur fengið góðar móttökur á Ísafirði en Ísfirðingar hafa flykkst í bíó að sjá myndina og við ætlum að hringja vestur og heyrðum í Snævari Sölva Sölvasyni leikstjóra og handritshöfundi myndarinnar.
Jakob Birgisson uppistandari kom í þáttinn svona í tilefni af því að það er föstudagur og okkur langaði að vera dálítið á léttu nótunum en líka vegna þess að hann er að frumsýna Vaxtaverki glænýja uppistandssýningu í Tjarnarbíó á morgun.
Í gær stóð Röskva, stúdentahreyfing í Háskóla Íslands, fyrir kröfufundi fyrir framan aðalbyggingu Háskólans þar sem rektor var afhent krafa um að stúdentum yrði boðið upp á ódýrt samgöngukort, svokallaðann U-passa. S. Maggi Snorrason, stúdent og nefndarmeðlimur málefnanefndar Röskvu, er mætti til okkar.
Lagalisti:
Sálin hans Jóns míns - Hvar Er Draumurinn?.
Friðrik Dór - Fröken Reykjavík.
Lizzo - Juice.
Post Malone og Luke Combs - Guy For That.
Black Pumas - Mrs. Postman.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson - Áfram KA menn.
Patrik Atlason - Við erum Víkingar
Mugison - Kletturinn.
Helgi Björnsson - Í faðmi fjallanna.
Una Torfadóttir - Dropi í hafi.
Una Torfadóttir - Fyrrverandi.
Herra Hnetusmjör - Ómótstæðileg.
Lionel Richie - All Night Long (All Night) [Radio Edit].
Kvöldfréttir útvarps
Lögmaður Yazans Tamimi ætlar að óska eftir við kærunefnd útlendingamála að umsókn Yazans Tamimi og fjölskyldu hans um alþjóðlega vernd verði send aftur til Útlendingastofnunar . Hann setur stórt spurningarmerki við vottorðið sem ríkislögreglustjóri útvegaði.
Erlendir brotamenn sem fá dóma hér á landi gætu verið látnir afplána utan landsteina, mögulega í Kósóvó. Þetta segir dómsmálaráðherra eftir fund með norrænum kollegum.
Einn af helstu forystumönnum Hezbollah er sagður hafa fallið í árásum Ísraels á skotmörk í suðurhluta Líbanons í dag. tólf voru drepin og tugir særðust.
Bæjarstjórinn í Kópavogi segir alrangt hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að einungis 59 íbúðir séu í byggingu í bænum. Bæta megi við einu núlli.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um ofbeldi í samfélaginu í ljósi voðaverka sem framin hafa verið í ár. Ekki síst er mikið rætt um ofbeldi meðal ungs fólks. Rannveig Þórisdóttir félagsfræðingur og samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra segir það skiljanlegt en að þótt skráðum ofbeldisbrotum hafi fjölgað sýni þolendakannir ekki að fleiri verði fyrir brotum.
Tuttugu og sex nýjir framkvæmdastjórar Evrópusambandsins voru kynntir á þriðjudaginn, eftir talsverðar sviptingar í tengslum við tilnefningar þeirra. Með valinu - og verkaskiptingu þessara embætta, er Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar almennt talin hafa tryggt - og jafnvel aukið - völd sín og áhrif í Brussel.
Lokaskákin í valdataflinu um eitt áhrifamesta fjölmiðlaveldi heims er nú tefld fyrir luktum dyrum í dómsal í Reno, Nevada-ríki. Rupert Murdoch og elsti sonurinn, Lachlan, sitja hlið við hlið andspænis órólegu deildinni sem fjölskyldfaðirinn vill að verði svipt völdum sínum, það sé þeim sjálfum fyrir bestu.
Við sjóðum góða sultu í þetta skiptið með blöndu af hiphop og rnb.
Lagalisti:
M.O.P. - Ante up
Mos Def - Mathematics
Young Thug - High
Martians vs. Goblins - The Game ft. Lil Wayne & Tyler, The Creator
Clique - Kanye West ft. Jay-Z & Big Sean
Bad and Boujee - Migos ft. Lil Uzi Vert
Planes - Jeremih ft. J. Cole
Fréttastofa RÚV.
PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar frá 1990 - Við grúskum í og spilum alla heitustu danstónlistina í dag í bland við dansbombur fortíðar í dagskrárliðnum múmía kvölsins.
Sem fyrr eru plötusnúðar þungamiðja þáttarins og munu helstu plötusnúðarnir koma í heimsókn og taka DJ sett. Mánaðarlega kynnum við Topp 30 PartyZone listann valinn af plötusnúðunum. Við segjum fréttir af íslensku danssenunni og gefum íslenskri danstónlist sérstakan sess í þessari endurkomu PZ í línulega dagskrá á Rás 2.
Umsjón: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson.
Við spilum allt það nýjasta í heimi danstónlistarinnar ásamt múmíu kvöldsins sem er einhver klassísk dansperla. Við sem fyrr skoðum það helsta sem er að gerast í danssenunni her heima, spilum þ.a.l. nýja íslenska danstónlist segjum frá hvar plötusnúðarnir hreiðra um sig á næstunni. Dj-ar kvöldsins eru Dj tvíeykið Dj Danni Bigroom og Björn Salvador. Þeir koma einmitt fram á Kaffibarnum um helgina. Það má búast við þéttum klúbbvænum tónum í settinu þeirra. DJ settið er einnig Nauðsynlega Mixið í PartyZone þennan mánuðinn.
Við minnum á að í lengri hlaðvarpsútgáfu þáttarins er settið einmitt tveir tímar.