Leikirnir okkar

Ísland – Frakkland á EM 2022

Eftir vonbrigði á HM 2021 voru væntingar litlar fyrir EM í Ungverjalandi, en íslenska liðið kom skemmtilega á óvart. Heimurinn var losna undan heimsfaraldri, sem þó setti stórt strik í reikning íslenska liðsins á mótinu. Ísland fór með góða stöðu í milliriðil. Þá fór hins vegar kvarnast verulega úr íslenska hópnum vegna Covid-smita. Fjölmarga lykilmenn vantaði þegar liðið mætti Frakklandi, þáverandi Evrópumeisturum. Ísland náði ekki einu sinni fylla varamannabekkinn, svo illa var liðið leikið. Það gerði sigurinn á Frakklandi, stórsigur þar auki, enn skemmtilegri. Fimmta sætið varð uppskeran af mótinu, sem var besti árangurinn frá 2014. Ómar Ingi Magnússon, Viggó Kristjánsson og Viktor Gísli Hallgrímsson leiddu liðið, á meðan Aron Pálmarsson, Björgvin Páll Gústavsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson sátu í einangrun vegna smithættu.

Frumsýnt

14. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Leikirnir okkar

Eftirminnilegir leikir íslenska karlalandsliðsins í handbolta í gegnum tíðina. Söguleg augnablik, óvæntir sigrar og leikir sem mótuðu handboltasögu þjóðarinnar.

Þættir

,