Leikirnir okkar

Ísland – Spánn á Ólympíuleikunum 2008

Ísland var mætt til leiks gegn Spáni í undanúrslitum Ólympíuleikanna í Peking 2008. Það var í þriðja sinn sem Ísland komst í undanúrslit en þetta var jafnframt mótið þar sem Ísland komst í fyrsta sinn í úrslit. Leikurinn gegn Spáni er mögulega, eða sennilega, eftirminnilegasti í handboltasögu þjóðarinnar. Með Loga Geirsson í ham gekk íslenska liðið frá því spænska í seinni hálfleik og tryggði sér verðlaunasæti á stórmóti í fyrsta sinn. Björgvin Páll Gústavsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Arnór Atlason, Snorri Steinn Guðjónsson, Ólafur Stefánsson, Alexander Petersson, Róbert Gunnarsson og Logi Geirsson voru þarna í eldlínunni ásamt mörgum, mörgum fleirum.

Frumsýnt

9. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Eingöngu aðgengilegt á Íslandi
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Leikirnir okkar

Eftirminnilegir leikir íslenska karlalandsliðsins í handbolta í gegnum tíðina. Söguleg augnablik, óvæntir sigrar og leikir sem mótuðu handboltasögu þjóðarinnar.

Þættir

,