Furðudýragarður
Í Kveikt´ á perunni! fá krakkarnir það verðuga verkefni að búa til furðudýr. Þau fá 10 mínútur til að klæða alla í stuðningsliðinu í búninga og kynna svo fyrir okkur furðudýrin í lokin.
Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.