20:15
Uppskriftabókin (3 af 6)
Brauðterta, lífræn ræktun og reyktar gulrætur

Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Kristbjörgu sem kennir okkur að búa til brauðtertu. Einnig hittir hún Hörð Bender sem ræktar lífrænar gulrætur og hvítlauk. Við lærum að gera reyktar gulrætur.
Er aðgengilegt til 18. september 2026.
Lengd: 40 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.