
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1990. Spyrill: Steinunn Sigurðardóttir. Dómari: Sonja B. Jónsdóttir. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Verslunarskóla Íslands. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Snorri Einarsson, Stefán Eiríksson og Jón Yngvi Jóhansson. Lið Verslunarskóla Íslands skipa Ellert Bjarnason, Jón Helgi Hreiðarsson og Sigtryggur Klemenz Hjartar.
Heimildarþáttaröð um sögu norrænnar hönnunar á síðustu hundrað árum. Í þáttunum er meðal annars rætt við hönnuði og safnara sem veita innsýn í sögurnar á bak við heimsþekkta hönnunarmuni. Í hverjum þætti er fjallað um ákveðið tímabil á árunum 1925 til 2025. Þulur: Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Þættir frá 2014 þar sem íslenskar hljómsveitir og tónlistarmenn flytja lög í myndveri RÚV. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson og upptöku stjórnaði Helgi Jóhannesson.
Nýdönsk, Dimma, Kvika og Beebee and the Bluebirds.

Sænskir þættir um matarsóun og hvernig hægt er að sporna gegn henni. Þáttastjórnendurnir Anna Lundberg og Paul Svensson kynna áhorfendur fyrir óvæntum uppskriftum að dýrindis réttum sem búnir eru til úr hráefni sem annars hefði verið hent.
Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.


Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir. Að þessu sinni fræðumst við um mannslíkamann.

Sænsk þáttaröð þar sem fylgst er með brúðkaupsljósmyndurum mynda ástfangin pör á þessum miklu tímamótum.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið og kynnast matarmenningu þjóðarinnar. Í þriðju þáttaröð Veislunnar leiða þeir félagar áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar.
Hrísey er næsti áfangastaður Sverris Þórs og Gunnars Karls og þeir banka upp á hjá sveitungum í leit að hráefni fyrir veisluna. Þar er Gunnar Karl á heimavelli enda ættaður úr Eyjafirði. Saltfiskur frá fimmtu kynslóðinni, guðdómlegt krydd, 700 hænur, lögreglan í Hrísey og leynibar er bara brot af því besta sem Norðurland hefur upp á að bjóða. Já, og hver er þessi Sævar?
Bresk dramaþáttaröð frá 2026 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Emma Hart starfar sem húshjálp í Yorkshire í byrjun 20. aldar. Með mikilli seiglu vinnur hún sig upp úr fátækt og byggir upp alþjóðlegt viðskiptastórveldi. Aðalhlutverk: Jessica Reynolds, Emmett J. Scanlan og Lydia Leonard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Leikin norsk þáttaröð frá 2018 sem gerist í Stafangri við lok sjöunda áratugar síðustu aldar og segir frá breytingunum sem urðu í samfélaginu þegar olía fannst í sjónum úti fyrir bænum og norska olíuævintýrið hófst. Meðal leikenda eru Anne Regine Ellingsæter, Amund Harboe, Bart Edwards, Malene Wadel og Pia Tjelta.
Finnsk leikin þáttaröð um fasteignasalann Lindu. Eiginmaðurinn fer frá henni og skilur hana eftir í skuldasúpu. Til þess að viðhalda lífsstíl sínum neyðist Linda til að gerast drottning undirheimanna. Aðahlutverk: Laura Malmivaara, Katja Küttner og Minna Haapkylä. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.