Síðdegisútvarpið

Klofinn kviðdómur, bílastæðamál borgarinnar og ný íslensk kvikmynd

Dómarinn í máli ákæruvaldsins gegn Lindsay Clancy hefur gefið kviðdómnum lokatilraun til komast einróma niðurstöðu. Mál Clancy, sem sökuð er um hafa ráðið börnunum sínum þremur bana í janúar 2023, hefur vakið heimsathygli. Réttarhöld hafa staðið yfir í margar vikur og ótal samsæriskenningar hafa sprottið upp á samfélagsmiðlum. Ástrós Signýjardóttir fréttakona sagði okkur nánar frá málinu.

Meirihlutinn í borgarstjórn vill stytta gjaldskyldutíma í miðborginni og halda bílastæðahúsum opnum allan sólarhringinn. Þetta á vera fyrsta skrefið í heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar. Þá eru fleiri breytingar í farvatninu hvað varða hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar og afnám kvaða um stærðir og herbergjafjölda við byggingu íbúða. Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, kom til okkar.

Kvikmyndin Hvar er draumurinn verður frumsýnd í kvöld en eins og nafnið gefur til kynna byggir hún á tónlist popphljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns. Sögusvið myndarinnar er Reykjavík snemma á tíunda áratugnum. Höskuldur Þór Jónsson leiksstjóri, og leikararnir Mikael Kaaber og Sigríður Ragnarsdóttir komu til okkar.

Ljósanótt í Reykjanesbæ var haldin í fyrsta sinn 2. september árið 2000 og hefur sannanlega skipað fastann sess suður með sjó. Guðlaug María Lewis var á línunni hjá en hún er verkefnastjóri hátíðarinnar.

Líkamsjákvæðni, samfélag og bangsar er gildi Reykvískra bangsa en bangsar frá öllum heimshornum koma saman í Reykjavík um helgina undir merkjum Reykjavík Bear. En hvað er Reykjavík Bear? Þeir Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins og Jóhann Örn B. Benediktsson, núverandi Mr. Reykjavík Bear, sögðu okkur nánar frá.

Hótel- og matvælaskólinn í MK stendur á tímamótum um helgina þegar hann fagnar 30 ára afmæli. Skólinn hefur útskrifað margan kokkinn í gegnum tíðina. En er skólinn ekki enn slíta barnskónum eða í það mesta kominn á unglingsár því þrjátíu ára saga er kannski ekki svo löng saga þegar kemur skólum. Eða hvað? Framkvæmdastjóri skólans, Haraldur Jóhann Sæmundsson, kom til okkar og fór yfir söguna, áskoranir og sagði okkur af afmælishátíð skólans sem verður haldin um helgina.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,