Jakob Bjarnason á Illugastöðum á Vatnsnesi
Í þættinum er sagt frá Jakobi Bjarnasyni á Illugastöðum á Vatnsnesi, sem var um margt sérstakur maður, eins og fram kemur í þætti Theodórs Arnbjörnssonar um hann.
Í þættinum er sagt frá Jakobi Bjarnasyni á Illugastöðum á Vatnsnesi, sem var um margt sérstakur maður, eins og fram kemur í þætti Theodórs Arnbjörnssonar um hann.
Jakob var bæði góður bóndi og sjómaður og þekkti fiskimiðin undan Vatnsnesi öðrum betur. Hann þótti einnig forspár um marga hluti og sagt var að það sem hann spáði fyrir um gengi jafnan eftir.
Efni þáttarins er sótt í Sagnaþætti úr Húnaþingi eftir Theodór Arnbjörnsson (1888–1939).
Lesari er Sigríður Kristín Jónsdóttir.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. apríl 2010

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.