Ólafur Högnason og Ingveldur Jónsdóttir - síðari þáttur
Þetta er síðari þátturinn þar sem sagt er frá Ingveldi Jónsdóttur og Ólafi Högnasyni. Efnið er sótt í bókina Afi og amma eftir Eyjólf Guðmundsson á Hvoli (1870–1954), sem kom út hjá…
Í þættinum eru tvær sjómannasögur.
Hreinn Ragnarsson, kennari á Laugarvatni, skrifar um upplifun sína af páskaveðrinu 9. apríl 1963, en hann fór á sjó frá Raufarhöfn þann dag.
Viðtal við Karl Björgvinsson frá Nausti á Þórshöfn.
Stefán Stefánsson frá Gerði í Vestmannaeyjum skrifar um starf sitt sem kyndari á togaranum Bjarnarey sumarið 1951.
Lesari ásamt umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. september 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.