Ólafur Högnason og Ingveldur Jónsdóttir - síðari þáttur
Þetta er síðari þátturinn þar sem sagt er frá Ingveldi Jónsdóttur og Ólafi Högnasyni. Efnið er sótt í bókina Afi og amma eftir Eyjólf Guðmundsson á Hvoli (1870–1954), sem kom út hjá…
Í þættinum er lesið úr bók Elínar Pálmadóttur, Með fortíðina í farteskinu, sem kom út hjá Vöku-Helgafelli árið 1996. Í bókinni er sögð saga þriggja formæðra Elínar: ömmu hennar, langömmu og langalangömmu. Í þættinum er sérstaklega fjallað um sögu langömmunnar, Sigurveigar Ingimundardóttur.
Lesari ásamt umsjónarmanni er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 8. september 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.