
Sagnaslóð
Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Í þættinum er sagt frá Hannesi J. Magnússyni (1899–1972), sem lengst af starfsævi sinnar vann að skóla- og uppeldismálum á Akureyri, fyrst sem kennari og síðar sem yfirkennari og skólastjóri við Barnaskóla Akureyrar.
Hannes var um áratugaskeið ritstjóri Heimilis og skóla, tímarits um uppeldismál, og gaf einnig út og ritstýrði barnablaðinu Vorinu ásamt fleirum. Hann skrifaði fjölda bóka og samdi og þýddi fjölda greina.
Hannes skráði minningar sínar og í þættinum er lesið úr bók hans Hetjur hversdagslífsins, sem kom út hjá bókaútgáfunni Norðra árið 1953.
Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 9. apríl 2010

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.