Sagnaslóð

Sveinbjörn Jónsson byggingameistari, seinni hluti

Í þættinum er áfram fjallað um Sveinbjörn Jónsson (1896–1982), sem fæddist í Svarfaðardal og ólst upp í Ólafsfirði. Að þessu sinni er Sveinbirni fylgt suður, þar sem hann hélt áfram viðleitni sinni til að efla samfélagið og koma á fót iðnaði til hagsbóta fyrir þjóðfélagið. Þar ber hæst fyrirtækin Rafha í Hafnarfirði og Ofnasmiðjuna.

Lesið er úr bókinni Byggingarmeistari í stein og stál, sem kom út hjá Ofnasmiðjunni og Fjölvaútgáfunni árið 1996. Höfundar bókarinnar eru Friðrik G. Olgeirsson, Halldór Reynisson og Magnús Guðmundsson.

Lesari er Bryndís Þórhallsdóttir.

Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 11. desember 2009.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sagnaslóð

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.

Þættir

,