Ólafur Högnason og Ingveldur Jónsdóttir - síðari þáttur
Þetta er síðari þátturinn þar sem sagt er frá Ingveldi Jónsdóttur og Ólafi Högnasyni. Efnið er sótt í bókina Afi og amma eftir Eyjólf Guðmundsson á Hvoli (1870–1954), sem kom út hjá…
Í þættinum er fjallað um Sigurð Jónsson frá Arnarvatni í Mývatnssveit, en hann orti meðal annars ljóðið „Blessuð sértu sveitin mín“.
Rætt er við Málmfríði Sigurðardóttur, eitt af börnum Sigurðar úr síðara hjónabandi hans.
Einnig er lesið úr minningargrein Jóns Sigurðssonar frá Ystafelli um Sigurð Jónsson, sem birtist í Samvinnunni árið 1949.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 16. október 2009.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.