Morgunútvarpið

Hótelturninn við Skúlagötu,auglýsingar á íslensku og heimili og hönnun

Framkvæmdir við hótelturninn á Skúlagötu voru stöðvaðar á mánudaginn og verktakar beðnir um að yfirgefa byggingarstað þar sem búið var að loka fyrir frekari fjármögnun á framkvæmdum. Vonir standa enn til að hótelið við Skúlagötu verði klárað og það opnað gestum. Magnús Geir Eyjólfsson fréttamaður setur okkur betur inn í málið.

Hvað er heitt og hvað er kalt á heimilum landsins þessa dagana? Eru einhverjir sérstakir litir eða mublur sem eru málið í dag og hvað er hægt að gera til að poppa upp heimilið? Hekla Rut Haukdal er með BA í innanhússarkitektúr gefur fólki góð ráð á TikTok. Hún ætlar að koma til okkar og deila visku sinni með hlustendum.

Auglýsingar á Íslandi eiga að vera á íslensku, segir Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins og er það kjarni frumvarps sem hann mælti fyrir á Alþingi á dögunum. Árnastofnun fagnar tillögum frumvarpsins og telur þær til bóta en hvað segja þau sem framleiða auglýsingarnar? Snorri kemur til okkar ásamt Braga Valdimar Skúlasyni, hugkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Brandenburg.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,