Morgunútvarpið

Strætó í Hveragerði, lífeyriskerfið, ESB og hjónabandið

Á síðasta fundi bæjarráðs Hveragerðis á dögunum var samþykkt tillaga frá Okkar Hveragerði þess efnis bærinn gangi eftir skýrum svörum og forsendum frá Vegagerðinni og innviðaráðuneytinu vegna boðaðra breytinga á almenningssamgöngum milli Suðurlands og höfuðborgarsvæðisins. Þau vilja lágmarki eina ferð á morgnana á háannatíma gangi beint á BSÍ án tafa við vagnaskipti í Mjódd. Lárus Jónsson bæjarfulltrúi var á línunni.

Greining Viðskiptaráðs sýnir umboðsvandi til staðar í íslenska lífeyriskerfinu, samþjöppun áhættu innanlands of mikil og sjóðfélagar hafi takmörkuð áhrif á ákvarðanir sjóðanna. Lagðar eru til breytingar á kerfinu, til dæmis um aukna áhættudreifingu, meira aðhald og gagnsæi. Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs, ræddi við okkur um þetta.

Þjóðin er klofin í afstöðu sinni til aðildaviðræðna við Evrópusambandið og sumum finnst umræðan vera farin út fyrir öll skynsamleg mörk. En hvernig eigum við tækla það vera ósammála öðrum fjölskyldumeðlimum? Jafnvel maka? Theodor Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi og fjölskylduráðgjafi, gaf okkur góð ráð.

Jóhann Páll mætti ferskur úr íþróttadeildinni með mola úr heimi íþróttanna.

Birt

20. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,