Morgunútvarpið

Ebóla herjar á börn í Kongó,nei eða já við ESB og Hrefna Sætran er Fálkaorðuhafi

Ebóla breiðist út með ógnarhraða í austurhluta landsins í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Barnaheill á Íslandi hófu neyðarsöfnun í síðustu viku, til sýna samstöðu með kollegum sínum í Kongó, en faraldurinn leggst verst á ung börn í landinu. Dánartíðni er tvisvar sinnum hærri meðal barna en fullorðinna af völdum ebólunnar. Vannæring ungbarna er viðvarandi vandamál á þessum slóðum, viðnámsþróttur lítill, og takmarkað aðgengi heilbrigðisþjónustu og meðferð. Þá eru hvorki bólusetning eða lyf eru við þessu afbrigði ebólu sem geisa. Sólveig Ólafsdóttir, kynningarstjóri Barnaheilla, mætti til okkar.

Eins og svo oft áður á mánudegi þá heyrðum við í Sævari Helgi Bragasyni með það nýjasta úr heimi vísindanna. Hann ræddi skemmtilega tilraun þar sem einhverskonar dráttarbátur er sendur út í geim.

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á viðræður um aðild Íslands Evrópusambandinu. Umræðan er á fleygiferð og nýlega voru stofnuð tvö samtök á sitthvorum pólnum; SJÁ sem eru samtök fólks sem hyggst greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við ESB og Ung gegn ESB-aðild, þar sem ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka hafa tekið saman höndum. Kolbeinn Arnarson frá SJÁ og Magnea Gná Jóhannsdóttir frá Ungum gegn ESB-aðild mæta til okkar.

Matreiðslumeistarinn og kraftlyftingakonan Hrefna Sætran fékk á dögunum heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Orðuna fékk Hrefna fyrir frumkvöðla- og uppbyggingarstarf í matreiðslu og veitingahúsarekstri en hún hefur verið áberandi íslenska veitingageiranum um árabil. En hvernig hefur bransinn breyst frá því Hrefna byrjaði hræra í pottum og hvað tekur hún í bekk? Hrefna kom til okkar.

Birt

22. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,