Morgunútvarpið

Fordómar,áhrif snuðnotkunar á málþroska,skattframtalið og hvar er best að búa?

Mannréttindahúsið sameinar fjölbreytt samtök sem berjast fyrir mannréttindum hvert á sínum forsendum. Og fyrir hádegið verður viðburður þar undir yfirskriftinni: Raddir sem rekast á veggi-hindranir í kerfinu og leiðir til úrbóta. Eitt af samtökunum sem stendur viðurðinum eru Endósamtökin og við fengum til okkar Unni Regínu Gunnarsdóttur en hún hefur upplifað Endómetríósu á eigin skinni og hún ætlar gefa okkur innsýn í hvernig það er lifa með sjúkdómnum og við spurðum hana hvaða hindranir hún hafi rekist á í kerfinu.

Talmeinafræðingarnir Tinna Sigurðardóttir og Halldís Ólafsdóttir voru byrja með hlaðvarpið Tröppur en þar fjalla þær allskonar tengt þeirra fagi og meðal annars málþroska barna. Í ljósi þess Morgunútvarpið er fjölskyldumiðaður þáttur þá fengum við þær til okkar til ræða meðal annars snuðnotkun barna og hvort hún hafi áhrif á framburð hljóða hjá börnum ? Hefur skjánotkun áhrif á málþroska og myndun hljóða? Og hvað er hægt gera við seinkuðum málþroska ungra barna ?

Fjölmiðlakonan og farfuglinn Lóa Pind hefur ferðast um allan heim og heimsótt fólk sem hefur ákveðið flytjast búferlum frá Íslandi og komið sér fyrir á nýjum og spenanndi slóðum. Ferðalögin eru orðin mörg enda hafa þættirnir Hvar er best búa sem hófu göngu sína á Sýn árið 2017 notið mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar. Nýjasta serían af þáttröðinni er komin á Sýn+ og Lóa Pind kíkti í kaffi til okkar og við spurðum hana utí ævintýrið sem þessi þáttagerð hefur verið síðastliðin ár og reyndum komast svarinu við spurningunni: hvar er raunverulega best búa?

styttist í það sem allir hafa beðið eftir en það er skil á skattframtali. fylla út og skila skattframtali er eitthvað sem marga kvíðir fyrir enda er þetta oft á tíðum flókið og við hræðumst gera mistök. Á sunnudaginn ætlar Lögrétta nemenda og hagsmunafélag lagadeildar Háskólans í Reykjavík bjóða fólki upp á ókeypis aðstoð við fylla út og skila skattframtali. En hvað er það sem er vefjast fyrir fólki og við hvað er fólk eins og ég og þú hrætt þegar það fyllir út framtalið? Elísabet Kristjánsdóttir og Hulda Fanný Pálsdóttir framkvæmdastjórar Lögréttu komy til okkar á eftir.

Birt

5. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,