Mannlegi þátturinn

Skýrsla vinnuhóps Landlæknis um ME, nýtt bókasafn í Smáralind og veðurspjall frá Kenýa

Nýlega kom út skýrsla vinnuhóps Landlæknis um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við sjúklinga sem glíma við ME, langvinnt COVID-19, POTS og umhverfisveikindi. Hópurinn var skipaður að beiðni heilbrigðisráðherra. Í skýrslunni kemur fram að sjúklingahóparnir sem um ræðir búa við eina allra þyngstu sjúkdómsbyrði sé miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma, en að þjónustan við hópana sé í hrópandi ósamræmi við þá staðreynd og umönnunarbyrði aðstandenda sé mikil. Freyja Imsland var fulltrúi ME félagsins í vinnuhópnum og hefur sjálf glímt við ME frá 2011. Hún kom í þáttinn í dag ásamt Helgu Edwardsdóttur formanni ME félags Íslands.

Bókasöfn hafa þróast úr hefðbundnum útlánastöðum í lifandi menningar- og samfélagsmiðstöðvar þar sem allir eru velkomnir, fyrir samveru, fræðslu, sköpun, lestur og menningarupplifun. Ný slík menningarmiðstöð sem verður 900 fermetrar er í smíðum í Smáralind og hugmyndin er að færa menningu og bókasafnsþjónustu nær fólkinu. Við ræddum við Elísabetu Sveinsdóttur, formann í menningar- og mannlífsnefnd Kópavogs og forseti bæjarstjórnar kom í þáttinn í dag til okkar hér á eftir.

Í veðurspjallinu vorum við í beinu sambandi við Einar Sveinbjörnsson þar sem hann var staddur í Kenya. Hann talaði aðeins um veðrið í Austur-Afríku og regntímabilin þar. Svo voru það hlýindin sem hafa verið hér á landi undanfarið og hvort því tímabili sé lokið og svo í lokin skoðaði hann aðeins langtímaspárnar og hvað þær eru að segja okkur.

Tónlist í þættinum:

Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon)

Tasko Tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)

Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson)

Leaves still green / Thin Jim and the Castaways(Jökull Jörgensen)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,