Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Stafræn heilsa, Prjónahelgi á Húsavík og vísindaspjall um Úralíþín A

Við fræddumst í dag um Stafræna heilsu, miðstöð sem var stofnuð í upphafi árs og hefur það hlutverk að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar. Guðmundur Jóhannsson samskiptastjóri Stafrænnar heilsu sagði okkur í dag frá þeim markmiðum sem eru þar í gangi og horfa með okkur lengra fram í tímann á það hver þróunin er í heilbrigðistækni, til dæmis eitthvað sem kallast stafrænir tvíburar, skammtatölvur og nanó-örflögur og flutning Heilsuveru yfir á Ísland.is sem mun gerast á næstunni.

Svo heyrðum við af Lykkjum í leyfi á Húsavík, en það verður prjónaviðburður haldinn þar 16.-18. október, svokölluð prjónahelgi, Lykkjur í leyfi.Þarna sameinast prjón, ferðalag, matur, kvöldvökur og samvera. Nanna Einarsdóttir og Thelma Steimann standa að helginni og sögðu okkur betur frá henni í þættinum.

Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn um efnið Úralíþín A sem getur mögulega verið notað til að meðhöndla erfið tilfelli hjartabilunar. En efnið Úralíþín A finnst til dæmis í granataeplum og bláberjum. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í vísindaspjalli dagsins.

Tónlist í þættinum:

Vals nr.1 / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)

Sous le ciel de Paris (Under Paris Himmel) / Sören Brix (Hubert Giraud)

Love is Blue / Paul Mauriat and his orchestra (André Popp, Pierre Cour & Brian Blackburn)

Stranger on the shore / Acker Bilk (Robert Mellin & Bilk Acker)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,