Árið er

Árið er 2014 - seinni hluti

Amabadama fer á flug, GusGus fer til Mexíkó, Jón Jónsson gefur allt sem hann á og Samaris sendir frá sér Silkidranga. Oyama fer úr skóglápi yfir í sveimrokk, Vio tríó vinnur Músíktilraunir, Hjaltalín fer á Hraunið og Júníus Meyvant er bjartasta vonin. Pollapönkarar fara fordómalausir í Eurovision, Sigur Rós treður upp í Game Of Thrones og Mono Town er í auga stormsins. Grísalappalísa kemur með rökrétt framhald, Teitur Magnússon fer sóló og Rökkurró drepur tímann. Hjálmar fagna tíu ára afmæli, Klassart fær flugmiða aðra leið, Jon Anderson syngur með Todmobile og Steve Hackett spilar á gítar. Mannakorn er í núinu, Skálmöld er með vættum í íslenska ævintýraheiminum og Ótta með Sólstöfum er besta íslenska plata ársins mati hlustenda Rásar 2.

Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.

Meðal viðmælenda í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2014 eru Salka Sól Eyfeld, Steinunn Jónsdóttir, Júlía Hermannsdóttir, Úlfur Alexander Einarsson, Jófríður Ákadóttir, Áslaug Rún Magnúsdóttir, Jón Jónsson, Birgir Þórarinsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Unnar Gísli Sigurmundsson, Haraldur Leví Gunnarsson, Aðalbjörn Tryggvason, Magnús Eiríksson, Daði Birgisson, Bjarki Sigurðsson, Teitur Magnússon, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Hildur Kristín Stefánsdóttir, Árni Þór Árnason, Baldur Ragnarsson, Snæbjörn Ragnarsson, Albert Finnbogason, Guðmundur Kristinn Jónsson, Snorri Helgason, Fríða Dís Guðmundsdóttir og Smári Guðmundsson.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Lagalisti:

Amabadama - Þyrnirós

Amabadama - Hossa hossa

Amabadama - Eldorado

Amabadama - Óráð?

Amabadama - Gaia

Oyama - Siblings

Samaris - Tíbrá

Samaris - Brennur stjarna

Samaris - Ég vildi fegin verða

Jón Jónsson - Ljúft vera til

Jón Jónsson - Endurgjaldlaust

Jón Jónsson - Ykkar koma

Jón Jónsson - Give It All U Got

Jón Jónsson - Gefðu allt sem þú átt

GusGus - Crossfade

GusGus - Sustain

GusGus - Obnoxiously Sexual

GusGus - Airwaves

Young Karin - Hearts

Vio - You Lost It

Hjaltalín - Everything Is Gonna Be Like Everything Will Ever Be (Anyways)

Geislar - Stone Cold Stone

Júníus Meyvant - Color Decay

Sólstafir - Lágnætti

Sólstafir - Ótta

Sólstafir - Dagmál

Sigga Eyrún - Lífið kviknar á

Pollapönk - Enga fordóma

Pollapönk - No Prejudice

Mannakorn - Í núinu

Mannakorn - Of seint iðrast eftir dauðann

Jónsi - Where no one goes

Sigur Rós - The Rains Of Castamere

Mono Town - Peacemaker

Mono Town - Can Deny

Mono Town - Yesterday’s Feeling

Mono Town - Jackie O

Teitur Magnússon - Nenni

Teitur Magnússon - Vinur vina minna

Teitur Magnússon - Kamelgult

Teitur Magnússon - Háflóð

Todmobile - Úlfur

Todmobile & Jon Anderson - Wings Of Heaven

Todmobile & Steve Hackett - Midnight Sun

Rökkurró - Blue skies

Rökkurró - The Backbone

Rökkurró - Killing Time

Skálmöld - hausti

Skálmöld - vetri

Skálmöld - vori

Grísalappalísa - ABC

Grísalappalísa - Nýlendugata-Pálsbæjarvör-Grótta

Grísalappalísa - Flýja

Kimono - Specters

Elín Helena - Raunsæ rómantík

Sindri Eldon - Almost Exactly

Skítamórall - Þú (ert ein af þeim)

Hjálmar - Lof

Hjálmar - Skýjaborgin

Ásgeir Trausti - Stormurinn

Ásgeir Trausti - Frá mér til ykkar

Uniimog - Yfir hafið

Klassart - Landamærin

Klassart - Flugmiði aðra leið

Frumflutt

7. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Árið er

Árið er

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

Þættir

,