22:03
Plata vikunnar
Rebekka Blöndal - Kannski

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Rebekka Blöndal kemur í Plötu vikunnar til að kynna Kannski, sína aðra plötu en þá fyrstu sem er algjörlega hennar eigin. Þar sem Ljóð frá 2022 var samstarfsverkefni, eru öll lögin á Kannski samin af Rebekku sjálfri, frá námsverkefnum í Listaháskólanum til sófahangs heima við. Við ræðum allt ferlið hingað til en hlustum líka á kynningar fyrir lög plötunnar auk laganna sjálfra.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 3 mín.
,