19:00
Stórsveit Reykjavíkur
Tónlistin úr Bláa hnettinum

Stórsveit Reykjavíkur hélt spennandi tónleika föstudaginn 24. apríl kl.18:00 í Norðurljósasal Hörpu.  Flutt var tónlist úr barnasöngleiknum Bláa Hnettinum sem er byggður á sögu Andra Snæs Magnasonar með tónlist eftir Kristjönu Stefánsdóttur og söngtextum eftir Berg Þór Ingólfsson. Nú hefur þessi vinsæla tónlist verið útsett fyrir stórsveit af Eiríki Rafni Stefánssyni sem einnig var stjórnandi á tónleikunum.

Sérstakir gestir voru leikararnir Björgvin Franz Gíslason og Hjörtur Jóhann Jónsson auk Barnakórs Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Barnakórs Ungleikhússins í Keflavík undir stjórn Kristjönu Stefáns ásamt ungum einsöngvurum frá Ungleikhúsinu í Keflavík og Grandaskóla í Reykjavík. Þess má geta að Blái hnötturinn hlaut Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins og tónlist ársins árið 2016. Tónleikarnir voru haldnir í samvinnu við Barnamenningarhátíð.

Hlutverk:

Skógarbjörn og sögumaður: Hjörtur Jóhann Jónsson

Gleði Glaumur: Björgvin Franz Gíslason

Hulda: Helena Björg Halldórsdóttir

Brimir: Ágúst Þór Guðmundsson

Margrét: Fríða Daðadóttir

Örvar & Steinar: Eysteinn Ari Arnarsson

Eydís spekingur: Elísabet Sól Sigurðardóttir

Rökkvi: Birkir Frosti Kjartansson

Lóa: Halla Björk Guðjónsdóttir

Dirrindí: Ástrós Tekla Jóhannsdóttir

Tónlist: Kristjana Stefáns

Söngtextar og handrit: Bergur Þór Ingólfsson

Saga: Andri Snær Magnason

Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Eiríkur Rafn Stefánsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 11 mín.
,