13:00
Sögur úr raunveruleikanum
Álögin á Vatnsenda

Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja.

Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,