Þættir um framlag þýsk-íslenska menntavísindamannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar skólasögu. Fjallað er um ævi og störf þýsk-íslenska uppeldis- og menntafrömuðarins, Wolfgangs Edelsteins, sem átti stóran þátt í leggja grunn að íslensku skólakerfi okkar daga. Wolfgang flúði með foreldrum sínum til Íslands undan ógnarstjórn nasista á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir að hann lauk stúdentsprófi frá M.R. fór hann til náms í Frakklandi og síðar í sínu gamla heimalandi, þar sem hann gat sér orð sem menntafrömuður og frumkvöðull í skólamálum. Á sjöunda áratug síðustu aldar var hann fenginn til að vera ráðgjafi nýrrar skólarannsóknadeildar sem sett var á laggirnar í menntamálaráðuneytinu. Að þessu verkefni vann hann í tæpa tvo áratugi, eða þar til deildin var lögð niður á níunda áratugnum.
Í þessum seinni þætti um framlag þýsk-íslenska hugsuðarins og fræðimannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar menntasögu á síðustu öld, er sjónum einkum beint að hatrömmum deilum um nýjungarnar sem Wolfgang Edelstein og samverkafólk hans í skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins lagði til og kenndar hafa verið við „sögukennsluskammdegi“. Deilurnar snerust framar öðru um kennslu í Íslandsögu á grunnskólastigi. Andstæðingar þeirra breytinga sem Wolfgang og samherjar hans vildu gera á námsefni og kennsluháttum, héldu því m.a. fram að í þeim fælist hvorki meira né minna en aðför að íslensku þjóðerni, með því að stórlega væri dregið úr kennslu í Íslandssögu. Í þættinum er fléttað saman blaðaskrifum og þingræðum, þar sem þessi andstæðu sjónarmið tókust á.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason og Svala Arnardóttir.
