Wolfgang Edelstein

Seinni þáttur - Sögukennsluskammdegið

Í þessum seinni þætti um framlag þýsk-íslenska hugsuðarins og fræðimannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar menntasögu á síðustu öld, er sjónum einkum beint hatrömmum deilum um nýjungarnar sem Wolfgang Edelstein og samverkafólk hans í skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytisins lagði til og kenndar hafa verið við „sögukennsluskammdegi“. Deilurnar snerust framar öðru um kennslu í Íslandsögu á grunnskólastigi. Andstæðingar þeirra breytinga sem Wolfgang og samherjar hans vildu gera á námsefni og kennsluháttum, héldu því m.a. fram í þeim fælist hvorki meira minna en aðför íslensku þjóðerni, með því stórlega væri dregið úr kennslu í Íslandssögu. Í þættinum er fléttað saman blaðaskrifum og þingræðum, þar sem þessi andstæðu sjónarmið tókust á.

Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason og Svala Arnardóttir.

Birt

25. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Wolfgang Edelstein

Þættir um framlag þýsk-íslenska menntavísindamannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar skólasögu. Fjallað er um ævi og störf þýsk-íslenska uppeldis- og menntafrömuðarins, Wolfgangs Edelsteins, sem átti stóran þátt í leggja grunn íslensku skólakerfi okkar daga. Wolfgang flúði með foreldrum sínum til Íslands undan ógnarstjórn nasista á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir hann lauk stúdentsprófi frá M.R. fór hann til náms í Frakklandi og síðar í sínu gamla heimalandi, þar sem hann gat sér orð sem menntafrömuður og frumkvöðull í skólamálum. Á sjöunda áratug síðustu aldar var hann fenginn til vera ráðgjafi nýrrar skólarannsóknadeildar sem sett var á laggirnar í menntamálaráðuneytinu. þessu verkefni vann hann í tæpa tvo áratugi, eða þar til deildin var lögð niður á níunda áratugnum.

Þættir

,