16:05
Síðdegisútvarpið
Ástandið í Mið-Austurlöndum, fataviðgerðir, og veðrið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Sveinn Ásgeir Jónsson segir farir sína ekki sléttar gagnvart rukkun á bílastæði í höfuðborginni. Hann lýsir því hvernig lögleg rukkunargildra virkar á Íslandi. Bæði Neytendasamtökin og FÍB hafa bent á þessi bílastæðagjöld sem eru rukkuð af einkafyrirtækjum sem villta vestrið. Sveinn Ásgeir sagði okkur sögu sína.

Árásir Ísraela og Bandaríkjamanna halda áfram á Íran. En hvernig mun þetta stríð hafa áhrif á Mið-Austurlönd til framtíðar í ljósi sögunnar? Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, kom til okkar

Í Hafnarfirði er verið að prófa nýjar leiðir í námi þar sem gervigreind og öpp eru nýtt til að hjálpa börnum að læra og skipuleggja skólaverkefni. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sem hefur unnið með börnunum að þessum aðferðum og Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar, komu til okkar.

Kristín Hermansdóttir veðurfræðingur á vakt í sjónvarpinu í kvöld fór yfir veðurspá næstu daga en það gengur ýmislegt á í veðrinu.

Mörg okkar muna þann tíma þegar það þótti sjálfsagt að gera við föt –setja bót á olnboga á peysum og skyrtum og stoppa í sokka. Í dag erum við oft fljótari að kaupa nýtt, nema flíkurnar hafi sérstakt tilfinningalegt gildi. Við ræddum fataviðgerðir fyrr og nú við Rögnu S. Bjarnadóttur, lektor og fagstjóra við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands og Ilmur Dögg Gísladóttir, safnstjóri Borgarbókasafnsins í Gerðubergi en þar er ýmislegt í boði sem tengist því að skipta um hugafar og fara vel með.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,