07:03
Morgunvaktin
Fangelsismál, pólitík í Evrópu og loðna

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, var gestur. Rætt var um fangelsismál vítt og breitt. Hér er hreinni og klárri refsistefnu beitt í fangelsismálum, ekki betrun eða endurhæfingu líkt og á hinum Norðurlöndunum. Um 800 manns bíða eftir að hefja afplánun.

Björn Malmquist flutti fréttir af stjórnmálum í Evrópu, m.a. kosningabaráttunni í Ungverjalandi og sveitarstjórnarkosningum í Frakklandi.

Í síðasta hluta þáttarins var fjallað um loðnu en vel heppnaðri loðnuvert er að ljúka. Talið er verðmæti upp á um 30 milljarða króna hafi skapast. Loðna var lengi aðeins veidd til beitu, seinna fór í mjöl en fyrir um 50 árum hófust tilraunir með frystingu og hrognatöku.

Tónlist:

Meine kleine Freundin, in the ballroom - Hjálmar H. Ragnarsson,

Oblivion soave - Sonya Yoncheva,

Sunny road - Emilíana Torrini,

Always and Forever - Ari Bragi Kárason og Eyþór Gunnarsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,