18:00
Kvöldfréttir útvarps
Snörp orðaskipti á Alþingi, átök um Hormússund og óvissustig vegna snjóflóðahættu

Fréttir

Fréttir

Umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er á lokametrunum og klárast í síðasta lagi á morgun. Til snarpra orðaskipta kom á Alþingi í dag.

Ráðamenn víða um heim eru ekki spenntir fyrir að dragast inn í stríðsátök í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjaforseti hefur óskað eftir aðstoð við opnun Hormússunds.

Óvissustig er enn í gildi á veginum um Súðavíkurhlíð, Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarmúla. Varað er við áframhaldandi hríð og hvassviðri.

Bílstjóri dráttarbíls sýndi snarræði og aftengdi tengivagn þegar eldur kviknaði í rútu sem hann var að flytja síðdegis í dag. Töluverðan reyk lagði yfir hluta Hafnarfjarðar.

Kjóll úr gömlum gardínum færði Vestmannaeyingum sigur í hönnunarkeppni félagsmiðstöðva um helgina.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,