07:03
Morgunútvarpið
Óskarinn,Dýraverndarsamband Íslands og Már Guðmundsson fyrrverandi Seðlabankastjóri

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Óskarsverðlaunahátíðin fór fram í nótt og við fórum yfir það helsta svo hlustendur okkar verði viðræðuhæfir í dag.

Heimildarmynd svissnesk-þýsku dýraverndarsamtakanna Animal Welfare Foundation leiddi til þess að umboðsmaður Alþingis fór í frumkvæðisúttekt á starfsháttum Matvælastofnunar, sem mat málið sem svo að það sem kom fram í myndinni væri ekki brot á lögum um meðferð dýra. Nú er athugun umboðsmanns Alþingis lokið án þess að embættið geri athugasemdir við starfshætti MAST. Dýraverndunarsamband Íslands gagnrýnir þetta og fullyrðir að blóðmerar hafi verið beittar harðýðgi í myndinni. Þá bendir sambandið á að maður sem beitti hund sinn harðýðgi á almannafæri hafi fengið sekt. Þarna er misræmi og Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, mætti til okkar og fór yfir málið.

Morgunútvarpið heldur áfram yfirvegaðri umfjöllun um kosti og galla við aðild að Evrópusambandinu og í dag kom til okkar Már Guðmundsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri. Má var í samninganefnd Íslands í aðildarviðræðunum sem hófust árið 2009 og var þar formaður samningahóps um myntbandalag. Þegar Már var seðlabankastjóri skilaði bankinn skýrslu um valkosti í gjaldmiðils- og gengismálum. Þar var farið yfir ýmsa kosti í gjaldmiðilsmálum en einn af kostum þess að ganga í myntbandalag var aðgangur sé að stórum fjármálamörkuðum án gengisáhættu en einn af ókostunum var að viðbrögð við sérstökum áföllum yrðu erfiðari. Már fór yfir þetta með okkur á mannamáli.

Það er alltaf nóg um að vera í heimi íþróttanna og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson mætti með sjóðandi heitan pakka frá íþróttadeildinni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,