07:03
Morgunútvarpið
Ástarsvik, Mottumars, Tourette og fullyrðingar um haframjólk

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Mottumars, árlega árvekni- og fjáröflunarátakið sem er tileinkað krabbameinum hjá körlum, hefst formlega í dag. Eins og áður eru sérstakir sokkar seldir til að styrkja starfsemi Krabbameinsfélagsins og í ár var það Stefán Svan Aðalheiðarson sem hannaði Mottumars-sokkana í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Stefán var valinn úr hópi tæplega 100 aðila sem sóttu um að fá að hanna sokkanna. Stefán, Linda og Anton þekkja glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því að hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því sprottin úr djúpri samstöðu, sem er átaksins í ár. Við fengum Stefán Svan til okkar.

Hinn skoski John Davidson hefur barist fyrir vitundarvakningu um Tourette-heilkennið í mörg ár og er líf hans er til umfjöllunar í kvikmyndinni I Swear. Davidson var á meðal áhorfenda á BAFTA-kvkmyndahátíðinni um síðustu helgi og hefur þurft að biðjast afsökunar á hljóðkækjum sínum, sem fylgja heilkenninu, og heyrðust greinilega í sjónvarpsútsendingunni. Við fengum til okkar Sindra Viborg, formann Tourette-samtakanna á Íslandi, sem fræddi okkur um Tourette og ræddi um hvaða áhrif atvik eins og þetta hefur á stöðuga baráttu gegn fordómum.

Með aukinni tíðni netglæpa færist í aukana að fólk lendi í svokölluðum ástarsvikum. Þá er fólk jafnvel komið í ástarsamband með manneskju sem það hefur aldrei hitt og byrjað að greiða háar upphæðir til viðkomandi. En hvernig fara þessi svik fram og hvaða aðferðum beita svikararnir. Stefán Örn Arnarson aðstoðaryfirlögregluþjónn hefur fengið þessi mál inn á borð til sín og hann fræddi okkur um þau.

Næringafræðingar og læknir birtu á dögunum grein á Vísi þar sem kom fram að fullyrðingar um að haframjólk sé varasöm og jafnvel skaðleg séu byggðar á upplýsingaóreiðu. Segja þau að ítrekað sé búið að benda á staðreyndavillur, rangfærslur og skort á vísindalegum gögnum í slíkri umfjöllun. En hvað er málið með haframjólk? Dögg Guðmundsdóttir næringarfræðingur kom til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,