07:03
Morgunvaktin
Heimaspítali, dýrin í Afríku og kjördæmavika

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Landspítalinn vill fá fjármagn til að starfrækja heimaspítala - og fordæmi fyrir því er til staðar á Selfossi. Þar hefur heilbrigðisstarfsfólk haldið úti heimaspítala undanfarin ár. Guðný Stella Guðnadóttir yfirlæknir öldrunarlækninga og frumkvöðull þessa verkefnis sagði okkur frá því hvernig heimaspítalar ganga fyrir sig.

Þórhildur Ólafsdóttir var með okkur frá Úganda og sagði okkur frá safaríferðum og hinum mögnuðu dýrum Afríku.

Kjördæmavika er á Alþingi og þingmenn fara um héruð og hitta kjósendur. Við slógum á þráðinn til tveggja og heyrðum af dagskrá þeirra í kjördæmaviku - já og hljóðinu í kjósendum. Þorgrímur Sigmundsson og Arna Lára Jónsdóttir ræddu við okkur.

Tónlist:

Ella Fitzgerald - Dream a little dream of me.

Ella Fitzgerald og Louis Armstrong - Stars fell on Alabama.

Karl Ágúst Úlfsson, Þórhallur Sigurðsson, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Felix Bergsson - Hakúna matata.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,