12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 5. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Forseti Úkraínu segir kaldhæðnislegt að Rússlandsher hafi drepið fimm í loftárásum í nótt á sama tíma og stjórnvöld þar vilji vopnahlé til að þess að halda hersýningu. Ríkin tvö hafa lýst hvort sínu vopnahléinu, sem eiga ekki að byrja á sama tíma.

Aðalsamningamaður Írans fullyrðir að Íranar séu rétt að byrja í viðureigninni um Hormússund. Íranar viti fullvel að óbreytt ástand sé óþolandi fyrir Bandaríkin.

Lesendur Rúv punktur is geta mátað skoðanir sínar við frambjóðendur og flokka til að auðvelda ákvörðunina í kjörklefanum 16. maí. Yfir tólfhundruð frambjóðendur hafa svarað kosningaprófi RÚV sem er sérsniðið að 50 sveitarfélögum.

Fjármálaráðherra telur að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi þegar skilað sér til neytenda og á von á að hún dragi úr verðbólgu.

Ef allt gengur að óskum siglir Herjólfur til Landeyjahafnar síðdegis. Höfnin hefur verið lokuð mestallt árið vegna sandburðar.

Maður sem keyrði inn í hóp af fólki í Leipzig í gær hafði verið vistaður á lokaðri geðdeild í Saxlandi. Minningarathöfn var haldin í borginni í morgun um þau sem létust.

Það er kuldi í veðurkortunum næstu daga og hluti landsmanna þarf að aka með gát, þar sem vetrarfærð er á vegum. Engar tveggja stafa tölur eru í veðurspánni, svo langt sem hún nær.

Franskur bjór með sítrónubragði er nánast uppseldur eftir að Yoko Ono krafðist þess að framleiðslu hans yrði hætt - henni mislíkaði nafnið John Lemon.

Það ræðst ekki fyrr en í oddaleik hvort Valur eða FH verður Íslandsmeistari karla í handbolta. FH vann tvíframlengdan leik liðanna í gærkvöld.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,