07:03
Morgunvaktin
Kosningar, Berlínarspjall og HM í fótbolta

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Það styttist í sveitarstjórnakosningarnar. Víða eru þrír, fjórir, fimm listar í boði - sums staðar bara einn og sjálfkjörið, Flest framboð eru í Reykjavík, ellefu talsins. Svo er persónukjör í nokkrum sveitarfélögum.

Sigurður Árnason hefur mikinn áhuga á kosningunum og kosningum almennt. Hann heldur úti vef sem nefnist kosningasaga þar sem ógrynni upplýsinga og fróðleiks er að finna. Hann kom til okkar.

Það styttist líka í að Heimsmeistaramótið í fótbolta hefjist. Fyrsti leikur fer fram 11. júní. Í aðdraganda móts ætlar Illugi Jökulsson að fjalla um þátttökuþjóðirnar og -liðin á Morgunvaktinni; hann beinir sjónum að því skrítna og sérstaka, og segir sögur sem ekki rata í íþróttafréttirnar. Mestur tími fór í dag í að tala um Curacao sem er á HM í fyrsta sinn.

Svo var Arthur Björgvin Bollason með okkur í Berlínarspjalli. Stjórnmál, fækkun barneigna og hvalurinn Timmy voru á dagskrá.

Tónlist:

Benni Hemm Hemm, Kórinn - Valið er ekkert.

Teitur Magnússon, Hildur - Mónika.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,