
Sara Mjöll Magnúsdóttir djasstónlistarkona var valin bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi við afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna í mars 2026.
Í tilefni af því endurflytjum við viðtal sem Pétur Grétarsson tók við Söru Mjöll í Djasslandi Rásar 1 í upphafi árs.
Sara Mjöll, sem leikur jöfnum höndum á píanó og Hammond-orgel, hefur á liðnum árum komið fram með eigin hljómsveitum og er einnig eftirsóttur meðleikari. Árið 2025 steig hún svo fram sem hljómsveitarstjóri með útgáfu fyrstu plötu sinnar, A Place to Bloom. „Metnaður hennar, frumkvæði og framhaldsnám í New York, einni af helstu höfuðborgum djassins, undirstrika að hér er á ferðinni tónlistarkona sem á eftir að láta mikið að sér kveða á komandi árum,” sagði forseti Íslands - Halla Tómasdóttir, þegar hún afhenti Söru Mjöll verðlaunin.