Sónata, ævintýraópera eftir Hjálmar H. Ragnarsson

Birt

23. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sónata, ævintýraópera eftir Hjálmar H. Ragnarsson

Samin við sögu Messíönu Tómasdóttur þar sem segir frá stráknum Trompett sem óskar þess af öllu hjarta dúkkan hans, hún Sónata, lifni við. Trompett verður vinur stóra Logadrekans og sigrast á hræðslu sinni við frekjuna hann Ansans Ára. Þannig bjargar hann líka prinsessunni Sónötu og óskin hans rætist.

Óperan var samin árið 1994 og er hér flutt í hljóðritun sem JAPIS gaf út árið 1995.

Flytjendur:

Marta G. Halldórsdóttir, sópran: Sónata, Lífsfuglinn, Logadrekinn og sögumaður.

Sverrir Guðjónsson, kontratenór og barítón: Ansans Ári, Faðirinn og sögumaður.

Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu og bassaflautu og Guðrún Óskarsdóttir leikur á sembal.

Umsjón: Pétur Eggertsson.

,