23. Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs.
Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings.
Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Sverrir Gauti Svavarsson, Steinar Björgvinsson og Vilmundur Hansen.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.