Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar, og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, komu til okkar í byrjun dags. Síðar í dag munu þau ásamt öðrum í utanríkismálanefnd Alþingis ræða tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður um aðild að Evrópusambandinu.
Edda Austmann, skólastjóri Tónskólans í Reykjavík, kom svo til okkar. Annasamir dagar eru að baki í tónlistarskólum, uppskeruhátíðin Nótan nýafstaðin og barnamenningarhátíð stendur enn. Hún ræddi um tónlistarskólana í Reykjavík og stöðu þeirra, en niðurskurðarkrafa þar undanfarin ár þýðir að biðlistar eru langir og lengjast.
Magnús Lyngdal sagði okkur frá þýska tónskáldinu Carl Orff og hans þekktasta verki - Carmina Burana.
Tónlist frá útsendingarlogg:
Ragnar Bjarnason, Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar - H-lagið 26.05.1968.
Heiða Eiríks - Ó kisa mín.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um stríð Rússneska keisaradæmisins við smáþjóðina Sirkassa í Kákasusfjöllum á nítjándu öld, sem lauk með miklu blóðbaði og því að nær allir Sirkassar voru hraktir af heimahögum sínum.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæmis viðtal hans við Leonard Cohen, sem var hans fyrsta verkefni í faginu.
Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við aðeins Eldhúsbókina og svo gáfum við snittubrauðinu gaum, hvernig á að baka það og margvíslegum notagildum þess.
Tónlist í þættinum í dag:
Vorátak / Söngflokkurinn í Mosfellsbæ, Diddú, Hafdís Huld o.fl. (Thorbjörn Egner, texti Hafdís Huld)
Banger / Virgin Orchestra (Stefanía Pálsdóttir, Rún Árnadóttir og Starri Holm, texti Stefanía Pálsdóttir)
Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag beinum við sjónum okkar að stöðu prentsmiðja og prentiðnaðar á Íslandi í ljósi gjaldþrots Ísafoldar sem greint var frá í vikunni. Rætt er við Georg Pál Skúlason, formann Grafíu, sem áður hét Félag bókagerðarmanna, og Önnu Leu Friðriksdóttur, sem er formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum.
Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.


Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.


Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 12. mars 2017: Í dag er viðfangsefnið þáttarins flug og flugferðir. Við kynnumst flugsögunni í flugsafninu á Akureyri og kíkjum í heimsókn í flugturninn á Ísafirði og sláumst í för með þyrlusveit landhelgisgæslunnar í leitar og björgunaræfingu.
Innslög í þáttinn unnu þau Dagur Gunnarsson Halla Ólafsdóttir og Rögnvaldur Már Helgason.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirdóttir.

Útvarpsfréttir.

Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er Fascinating Voyage sem Árni Egilsson gaf út 1985, en á henni leikur hann á bassa með tónlistarmönnunum Ray Brown, Jimmie Smith og Pete Jolly. Umsjón: Árni Matthíasson.
Árni Egilsson fæddist í Reykjavík 1939 og fékk snemma áhuga á tónlist. Hann byrjaði að læra á básúnu, sem entist reyndar ekki lengi, og sneri sér síðan að bassaleik sem hefur verið hans hljóðfæri upp frá því. Árni varð snemma mikill jazzáhugamaður og lék til að mynda með KK bandinu í Breiðfirðingabúð 1958 og tók þátt í að stofna Jazzklúbb Reykjavíkur ári síðar.
Að loknu námi við Tónlistarskólann í Reykjavík hélt Árni til náms í Bretlandi og það til Hamborgar, þar sem hann stundaði nám í Staatliche Hochschule für Musik. Í Bretlandi og Þýskalandi lék hann með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og kynntist meðal annars hljómsveitarstjóranum kunna Sir John Barbirolli. Samhliða því að stýra Hallé-sinfóníuhljómsveitinni í Manchester var Barbirolli aðalstjórnandi sinfóníunnar í Houston í Bandaríkjunum á árunum 1961 til 1967 og réði Árna til hljómsveitarinnar.
André Previn tók við Houston-sinfóníuhljómsveitinni af Barbirolli og hann og Árni léku mikið saman á næstu árum og áratugum, léku meðal annars saman á Listahátíð í Reykjavík á Listahátíð á Íslandi árið 1974 ásamt söngkonunni Cleo Laine.
Árni flutti til Los Angeles 1969 og býr þar enn. Hann varð fljótlega eftirsóttur í allskyns upptökuvinnu og hefur leikið inn á hundruð hljómplatna. Hann var ekki síður eftirsóttur í upptökur fyrir kvikmyndir og sjónvarp og hefur leikið tónlist fyrir hundruð kvikmynda og grúa sjónvarpsþátta. Það þótti frétt hér heima þegar spurðist að hann léki á bassa í upphafs- og endastefi Dallas-þáttanna sem nutu mikilla vinsælda hér á landi, fyrst í Kanasjónvarpinu frá 1979 og í Ríkisútvarpinu frá 1981. Hann var einnig oft kallaður til að leika sinfóníska tónlist og frumflutti til að mynda tónverkið Niður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, fyrsta íslenska konsertinn fyrir kontrabassa og sinfóníuhljómsveit.
Árni starfaði einnig sem kennari og var lengi prófessor í kontrabassaleik við California State-háskólann í Northridge. Á síðustu árum hefur hann líka samið talsvert af tónlist síðustu ár.
Fyrsta plata Árna var Basso Erectus sem kom út árið 1979 en eins og getið er kom Facinating Voyage út 1985 og er önnur plata Árna. Hann gaf hana út sjálfur, eins og áður er getið, en hún var einnig gefin út vestanhafs árið 1991 undir nafninu Basses Loaded.
Meðspilarar Árna á Facinating Voyage eru ekki af verri endanum. Þannig var Ray Brown einn helsti bassaleikari jazzsögunnar, lék til að mynda með Dizzy Gillespie, Art Tatum og Charlie Parker og var lengi í hljómsveit Oscars Peterson.
Á umslagi plötunnar skrifar Árni meðal annars: „Allt frá því ég byrjaði að hlusta á jass hefur Ray Brown verið átrúnaðargoð mitt. Ég á því erfitt með að lýsa tilfinningum mínum þegar hann sagði mér að hann vildi gjarnan spila með mér á þessari plötu, en „algleymi“ eða „ofsakæti“ kemst nálægt því.“
Píanóleikarinn Peter Jolly var vel þekktur og verðlaunaður jazzpíanisti og harmonikkuleikari á vesturströnd Bandaríkjanna en var líka glúrinn lagasmiður. Hann lék meðal annars með Buddy DeFranco, Art Pepper, Red Norvo, Ray Conniff og Herb Alpert.
Trommuleikarinn Jimmy Smith er ekki eins nafntogaður og Brown og Jolly, en lék þó með miklum meisturum eins og Jimmy Witherspoon, Erroll Garner, Benny Carter, Hank Jones, Eddie Lockjaw Davis, Zoot Sims, Jimmy Smith nafna sínum orgelleikara og Kenny Burrell.
Sjálfur leikur Árni á bassa að vanda en beitir boga á meðan Ray Brown plokkar strengi.
Þess má geta að Árni tileinkar plötuna André Previn og þakkar honum fyrir að hafa hvatt sig til að flytja til Los Angeles.
A-hlið plötunnar hefst með laginu Stella By Starlight eftir Victor Young. Þá kemur Body And Soul eftir Johnny Green, It Could Happen To You eftir Jimmy Van Heusen, Blues For Ray eftir Árna, sem samið er til Ray Brown, og Sigrún, sem er Litfríð og ljóshærð eftir Emil Thoroddsen í jazzbúningi.
B-hlið plötunnar hefst með Summertime eftir Hayward og Gershwin. Þar næst kemur I Remember Clifford eftir Benny Golson, þá I Love You eftir Cole Porter, Ástin, sem er útgáfa þeirra félaga á þjóðlaginu „Sofðu unga ástin mín“, og loks My Funny Valentine eftir Rodgers og Hart.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jovana Pavlovic, Borgarbyggðarlistinn, Davíð Sigurðsson, Framsóknarflokki, Sigurður Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki og Haukur Þór Hauksson, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Hveragerði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Marta Rut Ólafsdóttir, Framsóknarflokki, Ingimar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Lárus Jónsson, Okkar Hveragerði og Birgitta Ragnarsdóttir, Samfylkingu og óflokksbundnum.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjöldi laga hafa verið samin við ljóð Halldórs Laxness í gegnum tíðina og eru nokkur þeirra dregin fram í tveimur þáttum. Gunnar Þórðarson samdi lag við ljóðið Bráðum kemur betri tíð, sem kom út á Vísnaplötunni Einu sinni var. Önnur lög sem heyrast í þættinum eru Á þjóðveginum, lag Árna Johnsen, Kveðið eftir vin minn, lag Harðar Torfasonar, Þingvallavegurinn eftir Helga R. Einarsson sem Álafosskórinn syngur, Stóð ég við Öxará, þjóðlag sem Eddukórinn syngur, Hallormsstaðaskógur, sem er í tveim útgáfum, annarsvegar erlent lag og hinsvegar lag eftir Ómar Ragnarsson. Eiríkur Bóasson flytur eigið lag við ljóðið Stríðið, Ragnheiður Gröndal syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóðið Hjarta mitt, SSSól flytur eigið lag við ljóðið Þú kysstir mína hönd, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur lag Heimis Sindrasonar við ljóðið Þótt form þín hjúpi grafir, Þokkabót syngur um Óla fígúru og Tjarnarkvartettin syngur Vorvísu, lagið er eftir Jón Ásgeirsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Samantekt hvers þema (fimm þátta) úr örþáttaröðinni.
Upprifjun úr Uppástandi frá því í september 2022. Atli Ingólfsson, Elín Vigdís Guðmundsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Guja Dögg og Hrönn Sveinsdóttir fjalla um fegurð.

Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Í dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum.
Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón.

Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. mars 1988.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: mannlegi@ruv.is
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæmis viðtal hans við Leonard Cohen, sem var hans fyrsta verkefni í faginu.
Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við aðeins Eldhúsbókina og svo gáfum við snittubrauðinu gaum, hvernig á að baka það og margvíslegum notagildum þess.
Tónlist í þættinum í dag:
Vorátak / Söngflokkurinn í Mosfellsbæ, Diddú, Hafdís Huld o.fl. (Thorbjörn Egner, texti Hafdís Huld)
Banger / Virgin Orchestra (Stefanía Pálsdóttir, Rún Árnadóttir og Starri Holm, texti Stefanía Pálsdóttir)
Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Starfsfólk Matvælastofnunar hefur undanfarið orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum, þar sem settar eru myndir af starfsfólki og það nafngreint á samfélagsmiðlum og jafnvel í einstaka fjölmiðlum. Þá eru dæmi um að starfsfólk MAST hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum og óttast jafnvel um börn sín. Atvikin tengjast afskiptum Matvælastofnunar af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, kom í Morgunútvarpið og segir okkur betur frá þessu.
Unglingsárin eru tímabil mikilla líkamlegra, andlegra og félagslegra breytinga, þar sem kynþroski hefur veruleg áhrif á bæði líkamsþroska og líðan. Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands sem fjallar um frammistöðu, líðan og þátttöku stúlkna í knattspyrnu á unglingsárum. Verkefnið snýst í grunninn um að skilja betur hvað mótar íþróttaferil stelpna á þessum aldri, bæði líkamlega, andlega og félagslega, og hvernig þessir þættir þróast og tengjast hvor öðrum yfir tíma. Rúna Sif Stefánsdóttir, PhD, Lektor í íþrótta og heilsufræði í Háskóla Íslands, mætti og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni.
Sumarið er komið og nú svitnum við öll við tilhugsunina um veðrið. Hvernig verður sumarið? Milt? Hlýtt? Kalt? Við fengum Sigga Storm, veðurfræðigni frá Veðri ehf., til að skoða langtímaspárnar, rýna í gögnin og reyna að gefa okkur vísbendingu um hvað er í vændum.
Hvað erum við að fara að setja á grillið í sumar? Eru það bara gömlu, góðu kryddlegnu kótiletturnar með slettu af kartöflusalati eða er hægt að fara einhverjar aðrar leiðir. Matgæðingurinn Guðný Ljósbrá kíkti til okkar með góðar hugmyndir um hvað er hægt að borða þegar sólin skín.
Sigmar Vilhjálmsson keypti nýlega bæjarblaðið Mosfelling. Hafrún Hafliðadóttir hefur verið ráðin ritstjóri og við fengum þau til okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Hanna O´Connor stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur kom í heimsókn og sagði frá risatónleikum þar sem lúðrasveit hennar ásamt Lúðrasveit Vestmanneyja leikur undir og Júníus Meyvant, Una Torfa, Ragga Gísla og Mugison syngja. Lagalisti fólksin var á sínum stað, þemað var hiti!
Lagalisti þáttarins:
PÁLL ÓSKAR – Stanslaust stuð
GEORGE BAKER SELECTION – Little Green Bag
QUARASHI – Stick'em up
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
DAVID BOWIE – Rebel Rebel
FOO FIGHTERS – Big Me
KRUMMI – Smile till it ends
TAME IMPALA – Patience
BOB MARLEY AND THE WAILERS – Get Up Stand Up
THE B-52'S – Love Shack
IVAR KLAUSEN – Dreamer
EGÓ – Stórir Strákar Fá Raflost
MADONNA – I Feel Free
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR – Fegurðardrottning
JÚNÍUS MEYVANT – Beat Silent Need
HARRY STYLES – American Girls
SISTER SLEDGE – Thinking Of You
GORILLAZ – Stylo
DUA LIPA – Houdini
OASIS – Some Might Say
OMD – Enola Gay
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
INGIMARS EYDAL – Í Sól Og Sumaryl
GLENN FREY – The Heat is on
LOVIN´ SPOONFUL – Summer In The City
JAMIRAQUAI – Canned Heat
METALLICA – Fuel
BLOODHOUND GANG – Fire Water Burn
DONNA SUMMER – Hot Stuff
THE BEATLES – Good Day Sunshine
SPRENGJUHÖLLIN – Hiti (Airwaves 18.10.2007)
HOT HOT HEAT – Bandages
ASIA – Heat Of The Moment (80)
THE PRODIGY – Firestarter
JAMES BROWN – The Boss
SANDRA – In The Heat Of The Night
DODDI – Casablanca
BILLY IDOL – Hot in the city
DEEP PURPLE – Burn

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Borgarbyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Jovana Pavlovic, Borgarbyggðarlistinn, Davíð Sigurðsson, Framsóknarflokki, Sigurður Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki og Haukur Þór Hauksson, Miðflokki.

Oddvitar allra framboða til sveitastjórna mætast í umræðuþætti í aðdraganda kosninga 2026.
Fjórir listar eru í framboði í Hveragerði fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Marta Rut Ólafsdóttir, Framsóknarflokki, Ingimar Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki, Lárus Jónsson, Okkar Hveragerði og Birgitta Ragnarsdóttir, Samfylkingu og óflokksbundnum.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.