Við pabbi

Birt

23. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Við pabbi

Í þættinum Við pabbi rifjar Örn Árnason upp ferðlag þeirra feðga, hans og Árna Tryggvasonar þar sem þeir ferðuðust um landið með fjölskylduskemmtun með söng og leikrænu ívafi.

Í þættinum heyra hlustendur áður óbirtar upptökur af söng Árna Tryggvasonar.

Lögin eru tekin upp í stúdíó FÍH , Kjartan Valdimarsson lék á örlítið falskt píanó og Árni söng nokkur af sínum uppáhaldslögum. Örn segir frá þessari upptöku og hversu gaman var fylgjast með pabba sínum syngja svona ljúflega.

Umsjón: Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

,