Kiljan

29. apríl 2026

Í Kilju vikunnar fjöllum við um rithöfundinn Jón Trausta sem Halldór Laxness kallaði einn mesta undramann íslenskrar sagnalistar. Jón Trausti var fæddur í örbirgð, vann hörðum höndum allt sitt líf, skrifaði epískar skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda en andaðist í spænsku veikinni 1918. Guðrún Nordal ræðir við okkur um bókina Höfundur verður til en þar er fjallað um ævi og störf Jóns Trausta. Páll Ásgeir Ásgeirsson er ötull ferðamaður og ferðabókahöfundur - við hittum hann í slagveðursrigningu og tölum um bókina Ísland 175. Skáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir spjallar við okkur og fer með kvæði úr nýrri bók sinni sem nefnist Í hæfilegu magni. Í Bókum og stöðum förum við í Norðurfjörð og Ingólfsfjörð á Ströndum og þar verða meðal annarra á vegi okkar Þórbergur Þórðarson, Karólína Söebeck, Jón Hreggviðsson og Halldór Laxness. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Perlu eftir Jónínu Leósdóttur, Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána og Gula hundinn eftir Georges Simenon.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

29. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,