Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Ráðherra um Cop28, sprungur í þéttbýli og fólk sem heldur ekki jól

Ekki er útlit fyrir að þátttakendur á 28. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 28, geti komið sér saman um að notkun jarðefnaeldsneytis verði smám saman hætt. Þinginu lýkur á morgun og stefnir því í enn einn fundinn sem skilar litlu nema vonbrigðum. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- orku og loftslagsráðherra er gestur Kastljóss í kvöld.

Geta sprungur, líkt og sú sem olli miklu tjóni í Grindavík á dögunum, leynst víðar í þéttbýli á Suð-vesturhorninu án þess að fólkið sem býr í húsunum ofan á sprungunum viti af þeim? Við ræðum við jarðeðlisfræðing sem er sérfræðingur í þessu.

Svo hittum við fólk sem siglir gegn þungum, bjölluglymjandi jólastraumnum og heldur ekki jól.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,