• 00:01:05Facebook býður upp á áskrift
  • 00:12:43Fiskidagurinn mikli lagður af
  • 00:17:58Þorleifur Gaukur

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Auglýsingalaust Facebook, Fiskidagurinn allur, Þorleifur Gaukur

Meta, móður­fé­lag Face­book og In­sta­gram, ætlar að gefa fólki á Evr­ópska efna­hags­svæðinu á að kaupa áskrift sem veit­ir aug­lýs­inga­lausa upp­lif­un af sam­fé­lags­miðlun­um.

Með þessu er fyr­ir­tækið að bregðast við úrskurðum dómstóla í Evrópu sem þrengja möguleika tæknirisa til að safna upplýsingum um einstaklinga og hegðun þeirra á netinu. Gestir Kastljóss í kvöld eru Elva Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, og Atli Fannar Bjarkason, sérfræðingur í samfélagsmiðlum.

Fiskidagurinn mikli á Dalvík hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein vinsælasta hátíð landsins en í vikunni var tilkynnt að hátíðin yrði aflögð. Kastljós fór á Dalvík og tók púlsinn á heimafólki.

Þorleifur Gaukur, gítarleikari og munnhörpuleikari, en maðurinn á bakvið angurværa munnhörputóna á fjölda laga undanfarin ár. Hann er meðlimur í Kaleo, auk þess að spila undir með öðrum, gefur nú út sína fyrstu sólóplötu. Við hittum tónlistarmanninn að máli.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,