Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Minkabóndi lokar, fjármál Reykjavíkur, Egill Sæbjörnsson

Loðdýrabændur standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Taprekstur hefur verið í greininni undanfarin átta ár og um áramót ætlar formaður loðdýrabænda og lang stærsti framleiðandi landsins að loka 20 þúsund minka búi sínu. Kastljós fór í heimsókn á Skörðugil í Skagafirði.

Er ný fjárhagsáætlun Reykjavíkur merki um aðhald í rekstri og góðan árangur eða að allt sé í kalda koli í höfuðborginni. Rætt við Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Hildi Björnsdóttur oddvita sjálfstæðisflokksins.

Óendanlegir vinir alheimsins er lýsing á félagsskap listamannsins Egils Sæbjörnssonar á sýningu hans í Listasafni Íslands sem nú stendur yfir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,